Ég sá e-n tíman myndina þegar Sirius kom fyrst (í þriðju bókinni) og sá hvernig hann leit út í myndunum.Ég var ekkert að pæla í því þá hvernig hann leit út því þá hafði ég ekki lesið allar bækurnar og var svona slétt sama,, vissi ekki að hann ætti að vera alveg rosalega fallegur og allar lýsingarnar sem voru á honum.
Nokkru seinna byrjaði ég að lesa allar bækurnar bara í einum rikk.
Þegar ég var búin var ég komin með svo fallega mynd af Siriusi því hann er alltaf sagður vera svo fallegur og allt það, og í hausnum á mér var hann oooof fallegur!! (grunnurinn var samt byggður á gaurnum sem lék hann í myndinni en það breyttist veeeerulega)

Svo horfði ég aftur á myndina e-n tíman með frænda mínum, og sá hvernig hann leit út, og það eyðilagið ALLT!!!
Og núna sé ég hann eiginlega alltaf þannig :( þarf að einbeita mér geðveikt mikið til að gera það ekki :(

Hefur e-h annar lent í svona??