Ég er sjálf í 10. bekk, en á marga vini í framhaldsskóla. Ég hef heyrt mjög góða hluti um MH, að félagslífið þar sé frábært og allt það, þrátt fyrir áfangakerfi. Ég hef líka heyrt að MR sé mjög krefjandi skóli, en skemmtilegt fólk í honum svo að ég hef yfirleitt bara heyrt jákvætt um hann. Ég vinn með einni sem er í Versló, og hún segir að það sé svolítið um svona hópaskiptingu þar, en það séu fullt af hópum sem hægt er að falla inní. Ef þú ert að hugsa um skiptinám mæli ég með MH, en ef þú...