Ef við erum að tala um þessar litlu stafrænu vélar er 3ja milljón punkta upplausn og yfir alveg nóg fyrir venjulega ljósmyndun. Ég myndi allavega lítið spá í því hvort vél væri með 3, 4 eða 5 MP heldur miklu frekar gæðunum á linsunni, stærð skynjarans, hversu vel myndavélin vinnur úr upplýsingunum frá myndflögunni (Canon t.d. mjög góðir í því), hraðanum á vélinni, stærðinni o.s.frv. Þetta eru allt atriði sem skipta miklu meira máli en hversu margir megepixelar vélin er. Svo er það...