Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

akarnid
akarnid Notandi frá fornöld 50 ára karlmaður
322 stig

Re: Layo & Bushwacka! - Frá byrjun að nútímanum

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jámm, því miður algengt vandamál hjá danspródúserum sem sampla fyrst, gefa svo út og svo kemst copyright holderinn að því seinna. Og Bushwacka er sérstaklega óheppinn með þetta, því í herbúðum Michael Jackson voru menn ekki mikið hrifnir af þessu bootleg mixi hans, en þeir hefðu eflaust ekki sagt neitt, hefði það ekki orðið óvænt mjög vinsælt í London og eintök ruku út úr plötubúðunum sem selja bootlegga.

Re: Layo & Bushwacka!

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
The Everlasting er geggjað mix. Fokking eðal keyrsla, með mc og alles !

Re: Dungeons and Dragons 3.r (3.5), kostir og gallar

í Spunaspil fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er nú bara kúl að við skulum fá updates yfirleitt, og svona fljótt. TSR voru alltaf að drolla með þetta, eins og HVAÐ liðu mörg ár á milli 1st og 2nd ed.?

Re: Pirates leikur

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þú ættir alveg að fíla Pirates Of The Carribean þá. Fínn leikur, flott umhverfi, gefur manni alveg þennan karabíska fíling.

Re: Layo & Bushwacka!

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Deep South eru L&B. Það er af Low Life. Og Bushwacka er með Plank, Layo með Oblong. Ein google leit skilaði því.

Re: Pop-up gluggar

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Yep, besti pop up blokkerinn yet. Google geta bara ekki klikkað.

Re: Layo & Bushwacka!

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Tjah Bushwacka er líka helv. góður músíkant upp á eigin spýtur. Hann á t.d. uppáhaldslagið mitt á þessu ári í dansgeiranum, ‘Harps’.

Re: GTA á Xbox

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta lítur nú meira út eins og PC útgáfan af leiknum. Sem er bara gott. Og þetta eru nú báðir leikirnir saman á einum disk, þetta er ekki einn leikur sem blandar saman þeim báðum saman.

Re: Ps1-Ps2 ?

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Öööh neibb, þú þarft bara að poppa leiknum í, og vélin keyrir hann upp. Engir kubbar eða neitt. Ég ger ráð fyrir því að PS2 vélin þín sé keypt hérna á landi. Þá er hún PAL og þú þarft PAL útgáfu af leiknum.

Re: Kazalite

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Bit Torrent Allt annað er gersamlega vonlaust. Nema jú DC. www.dci.is

Re: Hinn sanni konungur platform leikjanna! (1986-90)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Já slíkir hlutir kallast leikjahermar (emulators). Reyndu að setja inn ‘NES Emulator’ sem leitar orð í leitarvél. Gangi þér vel.

Re: Fantasíubækur á íslensku ... eða skortur á þeim

í Bækur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Er það ekki bara fjárans bókmenntasnobbið? Ef þú skrifar ekki bók sem er ekki rótfest í raunveruleikanum þá er sjálfkrafa ætlast til að bókin sé barnabók. Og það verður enginn sosem frægur eða credible hér á landi, á því að skrifa barnasögur. Ég held að það viðhorf breytist ekki mikið í bráð, fantasíusögur hafa alltaf verið minnihlutabókmenntir, ‘költ’bækur. Þó svo að Tolkien sé nógu merkilegur til að bókmenntaelítan nenni að tala um hann, þá held ég að sá áhugi nái ekki lengra en að honum....

Re: DEICIDE - guðlöstun á heimsmælikvarða

í Metall fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Júmm, það var einnaðhvort 27 ára, rokkstjörnualdurinn, eða 33 ára, eins og Jesú. Never mind, hann er kominn yfir 33 ára núna!

Re: Gamecube og tengingar

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
s-video og PAL fara ekki alveg saman. Við notum RGB (SCART tengið) fyrir betri mynd, kanar nota s-video.

Re: DEICIDE - guðlöstun á heimsmælikvarða

í Metall fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Frábær grein, þú færð alveg feitt prik fyrir að nenna að skrifa svona magnaða ritgerð um bandið. En átti ekki Glen Benton að vera dauður? Hann lofaði því nú að hann myndi stúta sér fyrir 27 ára ammlið. Ætli það hafi ekki verið ein af hans mörgu djörfu yfirlýsingum. En nú í byrjum fékk nú hann og bandið gott umtal á fyrsta túrnum um Bretland aðallega vegna öfuga krossins sem hann brenndi í ennið á sér :Þ Hann var allaveg alltaf til í að útskýra hvers vegna hann gerði það… …hvað segiru….grein...

Re: Nintendo

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það þarf nú ekki nema að líta í kringum sig til að sjá þess merki að Nintendo eru að dala. Þeir eru farnir að vera í svipaðri stöðu og Sega. Nintendo er að reyna að lifa á fornri (Super Nintendo) frægð, svipað og Sega gerðu þegar þeir komu með Dreamcast. Að mínu mati gerðu Nintendo reginmistök þegar þeir kynntu vélina sína, lítinn fjólubláan kassa, sem lítur út eins og barnaleikfang. Það var eins og Nintendo væru enn að reynað ná til barnanna fyrst, sem svo myndu þá væla í foreldrum sínum um...

Re: Nauðgaðu mér góurinn.

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Verulega pathetic lesning.

Re: Halo online

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég veit það mar, ég er með 1.5Mbit frá Símanum. Það er bara regin munur á ADSL frá Simanum og Vodafone. Og þú þarft helst að vera með minnst 512 í upload, ef clientarnir tengjast í gegnum internetið til þín. Xbox leikir consume a lot of bandwidth :) Mikið meira en einhverjir PC skotleikir.

Re: Radeon 9800 SE vandræði

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er góð lenska þegar mar er að skipta um drivera, að uninstalla gömlu driverunum fyrst, reboota yfir í safe mode og installa nýju driverunum þar. Það er ekki sniðugt að yfirskrifa þá gömlu bara beint, þá eru líkur á að stýrikerfið finni hvorugan driverinn :(

Re: Abit IC7-Max3

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mér finnst nú ahugavert að ABIT eru beinlínis að nota ‘secure’ fidusinn á diskunum sem sölupunkt til þeirra sem stunda mikið p2p. Hvað ætli RIAA/MPAA segi núna?

Re: OutKast - Snillingar frá Atlanta

í Hip hop fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jámm, góð grein um mjög svo áhugaverða hljómsveit. Frumlegustu takta- og textasmiðir sem ég veit um í nútíma hip hopi. En þetta með að Rosa Parks sé að lögsækja þá er bara afskaplega glatað. Hún getur ekkert gert að því að hún er icon á meðal blökkumanna, svo hvað er hún að setja út á það að þeir vilji semja lög tileinkuð henni? That's just the way the world goes…

Re: Layo & Bushwacka að koma?!?!??

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jámm, hehe. Ég las viðtal við L&B skömmu eftir að Night Works kom út, og þar sagði Matthew (Bushwacka) að týpískkur dagur hjá þeim að semja lög fyrir plötuna hæfist á því að þeir hittust með fullt af vínyl plötum og reyndu að fimnna út hvað þeir gætu samplað, og svo gerðu þeir það sama við sampldiskana sína :) Ekki beint frumlegt sko….

Re: Halo online

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
512? Þá frá Vodafone?

Re: neikvæðni og skítkast ...

í Rómantík fyrir 22 árum, 8 mánuðum
People are idiots. Get víst ekki sagt þetta á neinn betri hátt.

Re: Adapter fyrir ps2 & gc pinna?

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Tjah svo fremi ég viti, þá geturu fengið þetta ‘Magic Box’ sem veitir þér möguleikann á að nota PS2 pinnann. Hann er þó alvarlega crippled, bara 4 takkar af 8 virka víst. Og enginn hefur enn reynt að tengja gamecube pinna, svo það er ekki hægt. Plús það að gæti orðið erfitt, því pinninn er allt öðruvísi í hönnun heldur en hinir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok