Sælir Xbox eigendur og aðrir.

Þannig er mál með vexti að við félagarnir eigum allir sitthvora leikjatölvuna, ps2, gamecube og xbox, en bráðlega kemur Soul Calibur 2 út fyrir þær allar. Við ætlum allir að kaupa leikinn fyrir okkar tölvur en til að við getum keppt almennilega okkar á milli þarf hver að geta notað þann controller sem honum finnst þægilegastur.

Við munum alveg örugglega nota Xbox tölvuna og þess vegna vantar okkur búnað til að við getum tengt ps2 og gc pinnana í xboxið.

Ég er búinn að leita á netinu og það eina sem ég finn er ‘magic box’ sem er hægt að tengja Saturn, ps/ps2 og Dreamcast pinna í…en ekki gc. Ef einhver veit um tæki sem gerir þetta þá væri það frábært. Helsti höfuðverkurinn er að finna eitthvað þannig að það sé hægt að tengja gc pinnann í xboxið.

peace out