Ég fékk mér hund í nóvember, í von um að geta þá hætt að sakna Labrador tíkarinnar sem ég átti. Ég gaf hana fyrir rúmum 4 árum, það er sá allra besti hundur sem ég hef átt. Því miður, og ég veit að það er ljótt að segja þetta, þá kemst “nýji” hundurinn minn ekki nálægt þeim gamla á neinn hátt. Ég hugsa oft um Tinnu, sem ég átti og mig dreymir hana oft, og ég vildi svo innilega óska þess að ég hefði aldrei gefið hana frá mér. En því miður varð ég að gera það, ég var að vinna frá morgni og oft...