Ég var að lesa viðtal við framleiðanda Survivor þar sem hann var spurður, þar sem þeir eru með svo margar myndavélar hvernig þeir færu eiginlega að því að láta þær aldrei sjást, t.d. í loftmyndum úr keppnum. Þá svaraði framleiðandinn að t.d. í sundkeppninni hefði verið sýnt úr lofti og að það hefði verið tekið upp seinna, með LEIKURUM sem voru í eins sundfötum og álíka út lítandi og alvöru keppendurnir, og þeir syntu á sama hraða þannig að enginn átti að sjá muninn. Framleiðandinn sagði að þetta væri nú ekkert stórmál þar sem þetti hafði engin áhrif á hver vinnur keppnina.
Fyrst að það eru notaðir leikarar í Survivor og hann viðurkennir það, hvað fleira gerist þá á bak við tjöldin sem við vitum ekkert um?!