Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Bandaríska lyfjaeftirlitið varar við hydroxycut. (21 álit)
í Heilsa fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Þetta er fyrir alla vitleysubelgina og pappakassana sem eru að nota hydroxycut. http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/05/02/varad_vid_hydroxycut/
ProjectEuler (10 álit)
í Forritun fyrir 15 árum
Vil bara endilega láta þá sem ekki vita af þessu projecti vita af því. Fín leið til að bæta sig í forritun. Fullt af forritunarþrautum sem þið getið leyst með forritunarmáli að eigin vali. http://projecteuler.net/ Frábær leið til að öðlast meiri reynslu og færni í forritun.Skora á ykkur að skrá ykkur þarna inn og fara að senda inn svör við þrautunum og að klifra upp stigatöfluna. Við erum held ég 60 þarna frá Íslandi akkúrat núna og okkur veitir ekki af að fá smá liðsauka.
Sannleikurinn um brennsluefni og fleira (2 álit)
í Heilsa fyrir 15 árum, 1 mánuði
http://www.youtube.com/watch?v=i7qGvm05swQ&feature=related Stillið á 8:30 mín ef þið viljið heyra allan sannleikan um brennsluefni. Bætt við 10. febrúar 2009 - 17:41 Ég get auðvitað ekki hjálpað þeim sem hafa ekki nennu til að horfa og í eins og 3 mín.
Hver selur góð barbells á Íslandi? (12 álit)
í Heilsa fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Mig vantar: - Góða stöng - Gúmmíhúðuð lóð ( barbellslóð ) - Almennilegan hnébeygjurekka Viðið þig kraftakarlar hver selur þetta á Íslandi? Fann ekkert á netinu. Bætt við 6. janúar 2009 - 06:54 Vitið þið kraftakarlar hver selur þetta á Íslandi?
Lucas Brunelle Videos (4 álit)
í Hjól fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég vildi bara benda á þennan gaur Lucas Brunelle út af korki hér fyrir neðan “Held að þetta gæti verið dálítið magnað að prófa…”. Þetta var ekki upprunalegt myndband, heldur var búið að dubba yfir það með einhverju helvítis píkupoppi, en það er ekki við hæfi að spila með þessu einhverja tónlist sem er fyrir kellingar. Þetta myndband heitir “DRAG RACE NYC” og svo mæli ég með “SAN FRAN” líka. Mæli með að þið hlaðið þeim niður og horfið á þau í fullscreen með hljóðið í botni. Ef þið viljið...
Handklæði. (3 álit)
í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég vil bara lýsa yfir ánægju minni á þessu handklæði. Gaman að fá einhverja speki frá óyfirlýstum spekingum, sem eru þó spekingar. Já já alltaf gaman, hérna hér, allt svo. Kv. VeryMuch
Arnþór L. Arnarson skrifaði:
Spurningin er mikilvægari en svarið.
<h
Hvenær verður manneskja heimspekingur? (4 álit)
í Heimspeki fyrir 20 árum
Ég er forvitinn að kanna hug hugaðra hér, varðandi hvað það er að vera heimspekingur. Forvitni mín sprettur af “Hverjir ætla” hlutanum á forsíðu heimspeki áhugamálsins, þar sem nú er spurt, hverjir ætla að verða heimspekingar. En hvenær verður manneskja að heimspekingur? Ég hef mínar skoðanir, en ég er helst að forvitnast um skoðanir annara, svo látið vaða. :) Takk. VeryMuch
Arnþór L. Arnarson skrifaði:
Spurningin er mikilvægari en svarið.
<h
Grein í lesbók Morgunblaðsins. (3 álit)
í Heimspeki fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Arnþór L. Arnarson skrifaði:
Spurningin er mikilvægari en svarið.
<h
TOPCOM, Webr@cer 851 PSTN (2 álit)
í Linux fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hefur einhverjum tekist að stilla Linux/UNIX fyrir þetta modem (ADSL)? Svo er spurning hvort þessi SpeedTouch driver frá ALCATEL virki fyrir þetta modem. Veit einhver af eða á um það? Ég er búinn að installa pppoa portið, búinn að stilla þessar helstu IP stillingar eftir bestu getu. Og svo læt ég vaða: “modem_run -v 2 -m -d /dev/ugen0 -f /usr/local/libdata/mgmt.o” Út spýtist eitthvað í líkingu við þetta: " Gotcha, I found your ADSL ALCATEL SpeedTouch USB modem! BLOCK1 : 991 bytes uploaded :...
Handklæði, Epikúros, gagnrýni. (9 álit)
í Heimspeki fyrir 20 árum, 6 mánuðum
“Dauðinn kemur okkur ekki við. Á meðan við lifum er dauðinn ekki hér. Og þegar dauðinn kemur þá erum við ekki lengur til. (Þannig séð hefur eiginlega ekki nokkur maður haft ama af því að vera dauður). Epikúros (341-270 f.o.t.)” Þetta er fallegt hjá honum Epikúros, við þurfum ekkert að vera að hafa áhyggjur af dauðanum. En þetta er bara ekki svona. Ef við þurfum ekki að hafa áhyggjur af dauðanum, þurfum við ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni. Ekki áhyggjur af morgundeginum, ss lifa fyrir...
MP3? (5 álit)
í Klassík fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Er ekki málið að hafa e-r helstu verk tiltæk á MP3 eða e-ð í þá áttina? Ég hef mikinn áhuga á að kynna mér klassíkina á þann hátt. Það vantar etv admin sem gæti svarað þessu? Kv. VeryMuch
Arnþór L. Arnarson skrifaði:
Spurningin er mikilvægari en svarið.
<h
Biblíur? (6 álit)
í Linux fyrir 21 árum
Ég er byrjandi, og hef verið að skoða ýmsar útgáfur á DistroWatch, og rakst á “LFS” þeas hvernig á að búa til Linux frá grunni. En mér finnst ég vanta svona lesefni til að grunda mig í þessu öllu saman. Burt séð hvaða distribution ég enda með að nota. Hvaða bækur eru svona Biblíur í Linux, eða bara yfir höfuð, hvað varðar Linux og tengt dót? Þá meina ég AÐALbækurnar sem allir þurfa að lesa, ef þeir vilja öðlast “yoga” og kynnast “Brahman” og enda sem “guhru”? ;) Mér finnst best að lesa á...
Komment á Handklæði. (9 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
“I conclude then that the necessary and sufficient conditions for knowing that something is the case are first that what one is said to know be true, secondly that one be sure of it, and thirdly that one should have the right to be sure. Alfred Jules Ayer (1910-1989) í The Problem of Knowledge” Er ég sá eini sem þykir meiga bæta við kommum og etv punktum, inn í þessa klausu hans Ayers? Hvað er þetta með suma heimspekinga og langar setningar?! Það mætti eflaust gagnrýna mig fyrir óþarfa...
IRC-Kvöld? (11 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Bara svona velta fyrir mér hvort fólk ætlaði að hittast á #heimspeki, í kvöld þann 13/9.. var það ekki umrædd dagsenting annars? :) Kv VeryMuch
rÖfl um könnun (2 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég vil ekki merkja við neitt af þessu. Allir þessir valkostir útiloka e-ð. Það er nú mín skoðun að það eigi einmitt ekki að útiloka neitt hér á HugaPunkturHeimspeki. Kv VeryMuch
Ekki heimspeki en hugmynd. (2 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hvernig myndi það nú koma út ef fólk myndi opna spjallrásina hérna, í nýjum glugga ss með því að hægriklikka á “Á spjallinu”, þegar fólk er á annaðborð inni á huga/heimspeki?! Það gæti haft áhugaverða útkomu. Kv. VeryMuch
Könnun: Maðurinn & Heimurinn. (11 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég er á því að hlutirnir “séu” bara. Heimurinn bara ER, og svo eru það við, og við öll saman. Við sem erum alltaf að baxa e-ð og bardúsa og viljum heiminn með í okkar vélum og klækjum. Nei, heimurinn er heimurinn og við erum við, og við erum heimurinn. En það kemur okkar plottum og pólitík ekki við. Um leið og maðurinn hefur tekið sér stöðu, og ætlar sér e-ð plott, fer hann að líta í kringum sig eftir hentugum bandalögum og traustum tólum og tækjum, sem hann vélar með sitt nýjasta fyrirtæki....
Þáttur um heimspeki í Sjónvarpinu. (2 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Vil bara benda á að það er þáttur um heimspeki á dagskrá sjónvarpsins: “Heimspeki fyrir byrjendur” held ég að hann heiti. KL: 18:30 á fimmtudögum; og eru 6 alls ef ég man rétt. 1. þáttur er núna í dag þann 3. jan. Takk fyrir VeryMuch
Handklæðið hans Kants. (2 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 3 mánuðum
“There is no possibility of thinking of anything at all in the world, or even out of it, which can be regarded as good without qualification, except a good will. Intelligence, wit, judgment, and whatever talents of the good mind one might want to name are doubtless in many respects good and desirable, as are such qualities of temperament as courage, resolution, perseverance. But they can also become extremely bad and harmful if the will, which is to make use of these gifts of nature and...
Bestu bækurnar sem þú hefur lesið?! (19 álit)
í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég gerði svipaða könnun varðandi hljómsveitir annarstaðar og vil endilega gera hana líka varðandi bækur. Þetta geri ég til að víkka sjóndeildarhringinn og að sjá hvort ég hafi farið á mis við einhver meistaraverkanna sem eru þarna úti. Hverjar eru þínar persónulegu top 5, eða meira ef þú nennir, bækur sem þú hefur lesið? Kannski akkurru og eftir hvern og svona almennt bla bla ef þú nennir varðandi bækurnar! Fukk that bara hafiði bara bestu fimm í lista, OKeeyj..! ;)
Hvað eru þínar 5 uppáhalds hljómsveitir? (15 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ekki löng grein, ég veit hehe… En ég er mjög forvitinn að sjá niðurstöðuna á þessu? Ef einhver nennir að svara… Kannski ágætis byrjun á landnámi mínu í heimi nýrra hljómsveita sem ég hef vanmetið… Hmm.. jæja?!
Reglur og heimspeki... (1 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hafið þið skoðun eða hugmyndir um reglur, eða eitthvað það sem heimspekin þarf að fylgja? Raunar felast spurningar í þessari spurningu… eins og hvað er þörf? Við hvað miðast þörfin?! Reglur eru augljósara og auðskilgreindara fyrirbæri, eða hvað? En ég er nú meira að pæla svona í þessu lauslega, og hvað fólki finnst svona almennt. Jæja látið vaða!
Er "insomnia"(krónískt svefnleysi) hvati merkra þanka?! (2 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér datt svona í hug að varpa þessari spurningu fram. Þar sem ég gat einmitt ekki sofið, núna(eða þá) þegar ég er(var) að skrifa þetta. Hmmm…. ? Kannski verður mar bara furðulegur… það er kannski fyrsta skrefið?! Eða hvað heldur þú? …
Hvað skiptir ÞIG máli? (1 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég ætla að nota tækifærið, sem þessi frábæra síða (eða netfyrirbæri) gefur.. og fá álit eins margra á þessari spurningu. Þeirra sem nenna að svara þessu á annaðborð. [Þessi samkunda gæti vaxið og dafnað! Ég sé hér vetvang til pælinga, sem vantar almennt fyrir frík eins og mig ;) ] Þetta gæti reynst áhugavert þegar margar skoðanir eru búnar að safnast upp.
"Hvað er heimspekingur?" (4 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað gerir mann að heimspekingi? Hvar liggja mörkin á milli fræðimanns og heimspekings? (Hugmyndin sprettur af spurningunni á einum pósti hér: “Jesú heimspekingur?”)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok