Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Sol - Vieira - Veron - Pælingar (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jæja nú fer að koma að því að Herra Sol Campbell muni tilkynna hvar hann mun leika í framtíðinni. Arsenal hefur boðið honum betri samning en þeir buðu fyrst og eru meira að segja búnir að taka frá númerið 23 fyrir hann, eða svo segja slúðurblöðin. Inter Milan segjast vera nokkuð vongóðir um að hann velji þá og svo hefur Barcelona gert tímamóta samning við leikmann, þá meina ég að það var ekki nóg að bjóða honum laun heldur vill hann fá fríar ferðir til og frá Spáni þegar hann fer í frí til...

Netverslun - Mamma og fleira (5 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég ákvað að skoða úrvalið á heimasíðum Símafyrirtækjanna og ég komst að því að það er eiginlega ótrúlegt að þessi hátækni fyrirtæki skuli ekki leggja meiri metnað í heimasíðurnar sínar. Fyrst skoðaði ég tal.is og komst að því að þessi heimasíða hefur nánast ekkert uppá að bjóða nema þá Mömmuna svokölluðu en inní henni getur maður t.d sent sér hringitón, logo og kort, jú og svo getur maður stillt ýmislegt sem maður vill láta minna sig á með SMS. Vefverslunin hjá Tali var ein sú lélegasta sem...

Nokia að koma með GPRS síma, Loksins ! (12 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er Nokia að koma með á markað Nokia 6310 og Nokia 8310 sem munu innihalda GPRS tæknina ásamt fleiru. Þetta er náttúrulega alveg frábært, sérstaklega þar sem það hefur vantað fleiri GPRS síma á markaðinn til þess að GPRS nái nú að festa sig í sessi hjá Íslendingum. Ég er meira að segja farinn að halda að það sé nánast enginn með GPRS í notkun núna, allavega þekki ég fáa. Ég hef notað GPRS í töluverðan tíma og er að nota 3-1 kerfið en þeir sem ekki skilja þá þýðir 3-1 að síminn notar þrjú...

Vieira leikmaður ársins 2001 (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Patrick Vieira var veittur titilinn leikmaður ársins nú í dag en þessi titill kemur frá aðal styrktaraðilum ensku úrvalsdeildarinnar sem heita Carling (held það sé bjór framleiðandi). En eins og Mbl.is orðar þetta: Franski miðjumaðurinn, Patrick Vieira hjá Arsenal, hefur verið kjörinn leikmaður ársins af bakhjörlum úrvalsdeildarinnar. Þessi útnefning undirstrikar gott tímabil hjá hinum 24 ára gamla Vieira, sem þykir líklegur framtíðarfyrirliði á Highbury. Carling er aðalstyrktaraðili...

Nakata á leið til Arsenal (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Tekið af arsenal.is HIDETOSHI NAKATA verður leikmaður Arsenal í næstu viku ef allt gengur upp. David Dein og Arsene Wenger eiga víst að vera á leiðinni til Ítalíu til að tala við umboðsmann Nakata og forráðamenn Roma. Sagt er að búið sé að ákveða 16 milljóna punda verðmiða á hann. Það yrði mikill fengur fyrir Arsenal að fá Nakata þar sem talið er að peningur sá er hann mun kosta muni borga sig á einni leiktíð í sölu á búningum í Japan og í Asíu þar sem hann er dáður. Enn eins og flestir vita...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok