Nakata á leið til Arsenal Tekið af arsenal.is
HIDETOSHI NAKATA verður leikmaður Arsenal í næstu viku ef allt gengur upp. David Dein og Arsene Wenger eiga víst að vera á leiðinni til Ítalíu til að tala við umboðsmann Nakata og forráðamenn Roma. Sagt er að búið sé að ákveða 16 milljóna punda verðmiða á hann. Það yrði mikill fengur fyrir Arsenal að fá Nakata þar sem talið er að peningur sá er hann mun kosta muni borga sig á einni leiktíð í sölu á búningum í Japan og í Asíu þar sem hann er dáður. Enn eins og flestir vita þá er Nakata Japani, hann spilar á miðjunni og er mjög sókndjarfur og getur skorað mörk af löngu færi og er þekktur fyrir að gera nokkur svoleiðis á hverri leiktíð. Semsagt fimm ára samningur við Nakata vonandi í höfn í næstu viku.