Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Fyrri undankeppnin í kvöld! -Komumst við áfram? (6 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Jæja, nú í kvöld er fyrri undankeppnin í Eurovision þar sem Gréta og Jónsi verða nr. 2 á svið. Hvernig haldiði það þetta verði hjá þeim og komumst við áfram? Eða verðum við kannski dregin út úr seinasta umslaginu eins og alltaf? Ég er viss um að þetta verði flutt vel hjá þeim og er einnig alveg viss um að við munum komast áfram! Í raun trúi ég því að við gætum endað í topp 5 í aðalkeppninni. Vona að ég sé ekki óþarflega bjartsýn. :) Hvað haldið þið?

Djöflaeyjan (8 álit)

í Bókmenntir og listir fyrir 11 árum, 11 mánuðum
Jæja, störtum smá menningarumræðu hérna! :) Hafið þið horft á Djöflaeyjuna sem sýnd er á RÚV? Hvernig finnst ykkur sá þáttur og hvað finnst ykkur skemmtilegast að sjá í honum? Ég horfi á hann þegar ég get og finnst hann bara mjög fínt. Sé alveg oft eitthvað sem er mjög áhugavert í honum. Mér finnst leiklistarumræðan skemmtilegust og þegar það er verið að gagnrýna einhverjar ákveðnar leiksýningar. :) Hvað finnst ykkur?

Alla Leið -Nýi þátturinn (6 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 11 árum, 11 mánuðum
Sæl öll! Eins og þið kannski vitið er búið að skipta um umsjónarmenn á þættinum Alla leið og var fyrsti þátturinn sýndur í gær. Mig langaði að spyrja ykkur.... hvernig fannst ykkur hann? Ég verð að segja að mér finnst hann miklu verri heldur en áður! Þetta var svo óskipulagt hjá þeim...töluðu öll bara í belg og biðu og voru með alskonar óþarfa til að "reyna" að gera þáttin skemmtilegri eins og "vindvéla-showið" og "verðlaunin". Þetta gerði það að verkum að þau töluðu frekar lítið um lögin...

Smá galli (0 álit)

í Nýi Hugi fyrir 11 árum, 11 mánuðum
Hæ hó Ég tók eftir einu… Núna áðan skráði ég mig inn á betuna sem “Stjarna4” og þar voru komnir nokkrir nýjir þræðir frá vefstjóra síðan ég skráði mig seinast inn. Það er, eins og þið vitið, auðvelt að sjá hvaða þræði maður er búinn að skoða eða ekki og er það mikill kostur. Þegar ég hinsvegar skráði mig inn á hinu notendanafninu mínu þá voru þessir nýju þræðir vefstjóra merktir “lesnir”. (Stafirnir voru semsagt gráir í stað þess að vera svartir). Einu titlarnir sem voru svartir voru merktir...

Vandamál með að svara (3 álit)

í Nýi Hugi fyrir 11 árum, 12 mánuðum
Hæhæ, Núna get ég ekki svarað neinum á Nýja Huga. Ef ég smelli á “svara” poppar svarglugginn upp en skýst óðum til baka. Ég nota Google Chrome og hef aldrei verið í neinum vandræðum með þetta hingað til. Hvað er í gangi? :)

Hugmynd fyrir hugboð! (11 álit)

í Nýi Hugi fyrir 12 árum
Sæl öll, Ég er með hugmynd! Hvernig væri nú ef maður gæti hakað við “ólesið” eða “geyma” við hugboð sem maður fær. Stundum er maður t.d. að rökræða við einhvern en hefur ekki tíma/orku til að svara viðkomandi þegar maður skoðar svarið. Þá gæti maður merkt við “svara seinna” eða jafnvel bara “ólesið” og þá minnir það mann á að maður á eftir að svara. :) Ég hef allavegana lent allt of oft í því að ég ætla að svara einhverjum seinna en gleymi því svo :( Lítur út eins og ég vilji ekki svara eða...

Allir geta sent inn tilkynningar (3 álit)

í Nýi Hugi fyrir 12 árum
Hæhæ, Ég gat sent inn tilkynningu frá Beta-notendanum mínum, líkt og hér: http://beta.hugi.is/kynlif/tilkynningar/798731/ma-eg-senda-inn-tilkynningu/ Er það ekki mistök? :) Bætt við 29. mars 2012 - 13:21 Eru*

Samþykkja mynd -Virkar ekki! (6 álit)

í Nýi Hugi fyrir 12 árum
Hæhæ Ég sendi inn 3 myndir frá beta-notendanum mínum. (Inn á /hp, /baekur og /teiknimyndir) -Það virkaði vel. Ég samþykkti allar myndirnar sem Stjarna4 -Það virkaði vel. Hinsvegar koma myndirnar ekki á áhugamálin þrátt fyrir að ég hafi samþykkt þær. Beta-notandinn fær heldur engin skilaboð þess efnis að ég hafi samþykkt þetta.

Kynlíf 18 + (2 álit)

í Nýi Hugi fyrir 12 árum
Hæhæ, Kynlíf 18+ virðist ekki virka á betunni. Verður ekkert svoleiðis á Nýja Huga…bara /kynlif eða?

Senda tilkynningu inn á /skóli (4 álit)

í Nýi Hugi fyrir 12 árum
Hæ, Ég ætlaði að senda inn tilkynningu á /skóli..bara til að prófa. Skrifaði smá texta og setti inn mynd líka. Síðan þegar ég smellti á “senda” kom upp: 500 Villa… Ég smellti á back og reyndi aftur, þá refresh-ast síðan alltaf (tilkynningin sem ég skrifaði helst óbreytt) en ég næ ekki að senda tilkynninguna. Bara láta vita! Kv, Stjarna4

Spurning varðandi Deathly Hallows part I (6 álit)

í Harry Potter fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Hæhæ Hvar nákvæmlega endaði aftur partur I af Deathly Hallows? Er að fara í bíó í kvöld á part II en fór seinast á part I í bíó þannig ég er búin að gleyma hvar nákvæmlega myndin endaði :)

Vandamál með að spila file á netinu með Windows Media Player (6 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 12 árum, 11 mánuðum
Sæl öll! Ég er í vandræðum með eitt í tölvunni og það böggar mig ólýsanlega mikið. Þannig ef þið gætuð hjálpað mér með þetta yrði ég mjög þakklát. Þannig er mál með vexti er að ef ég ætla að spila eitthvað file á netinu sem tengist sjálfkrafa Windows Media Player, þá getur spilarinn ekki spilað það. Þessi texti kemur alltaf upp: Windows Media Player cannot play the file because the specified protocol is not supported. If you typed a URL in the Open URL dialog box, try using a different...

Alla Leið (3 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 12 árum, 11 mánuðum
Hvernig finnst ykkur Alla Leið? Mér finnst þetta rosalega skemmtilegir þættir :) Guðrún Gunnars, Reynir og Dr. Gunni eru svo ólík og oft svo ósammála og það gerir þetta skemmtilegt. Sumum finnst pirrandi hvað Páll Óskar er dómbær á lögin en mér finnst það bara allt í lagi, hann á ekkert endilega að vera hlutlaus! Bara gaman að hafa sterka skoðunn á hlutunum, maður þarf ekkert alltaf að vera sammála ;) Hvað finnst ykkur? :)

Pabbinn að reyna svæfa dóttur sína (0 álit)

í Börnin okkar fyrir 12 árum, 11 mánuðum
Sá þetta videó og ákvað að deila því hérna þar sem mér finnst frekar skondið að fylgjast með þessu :) http://www.pressan.is/Veroldin/Lesagrein/pabbi-reddar-malunum-svefnvandamal-taeklad-a-splunkunyjan-og-oborganlegan-hatt–myndband

Pönkaraföt (1 álit)

í Tíska & útlit fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Sælir hugarar, Hvar get ég fengið föt í pönkarastíl? Mig vantar aðalega einhvern bol :) Það væri best ef þetta væri frekar ódýrt :) Kv, Stjarna4

Nýr Deathly Hallows trailer! (9 álit)

í Harry Potter fyrir 13 árum, 6 mánuðum
Sæl og blessuð, Það er kominn nýr Deathly Hallows trailer. Ákvað að setja hann hérna inn, svona til vara, ef þið eruð ekki búin að sjá hann núþegar: http://www.youtube.com/watch?v=Su1LOpjvdZ4 Og…ÉG ER AÐ DEYJA ÚR SPENNINGI!! Vildi óska þess að ég hefði tíma til að lesa seinustu bókina aftur! Hef bara lesið hana einu sinni, og er búin að gleyma svo miklu! En jæja, ætli það þýði ekki bara að ég verð aðeins ánægðari með myndina þar sem ég mun ekki taka eftir eins mörgum “villum” eða misræmi...

Hvaða bók.... (17 álit)

í Bækur fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Halló, Hvaða bók eruð þið að lesa núna og hvernig finnst ykkur hún? Ég er að lesa Stúlkan sem lék sér að eldinum. Mér finnst hún mjög skemmtileg. Fékk reyndar nett sjokk í gærkvöldi þegar ég var að lesa (út af atburðum sem gerðust í bókinni) og ég gat ekki hætt að lesa :) En já, endilega segið mér hvaða bók þið eruð með! :)

Svartar þykkar leggings (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Hæhæ Hvar get ég fengið svartar þykkar og þægilegar leggings á góðu verði? Var að fatta að nánast allt leggingsið mitt er annaðhvort með gati á eða ótrúlega óþægilegt. Kv, Stjarna4

Ring? (7 álit)

í Tilveran fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Sæl öll, Ég er með Frelsi hjá Símanum. Skráði mig einu sinni í Núllið og það var svaka fínt. En það er það ekki lengur þar sem núna er bara 1 vinur virkur. (Áður voru það fleiri). Svo ég var að pæla í að fara í Ring. En málið er…ég fatta ekkert hvernig þetta virkar. Mig langar ekki að hringja því auðvitað segja þau: “Já, þetta er frábært komdu í Ring! Þetta virkar svona bla bla bla” Og ég mun ekki skilja nett :P Þannig…þið sem eruð hjá Ring, hvernig virkar þetta? Og líkar ykkur vel að vera í...

Enn einn þráðurinn.... (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Hæhæ Ég veit að það koma mjög margir svona þræðir hingað en mig langaði samt að spurja að þessu…enn og aftur :P Hvar er best og ódýrast að fara í klippingu? Ég er með sítt liðað hár…og þarf nauðsynlega að komast í klippingu! Ég á ekki mikinn pening en það skiptir mig samt mjög miklu máli að ég sé ánægð eftir klippinguna, auðvitað. Hvaða stofum mælið þið með? (Lang best að þær séu einhversstaðar miðsvæðis í Reykjavík)

Meira varðandi Inntökuprufurnar í LHÍ (9 álit)

í Leikhús fyrir 14 árum
Hæ allir :) Ég veit það er þráður hérna fyrir neðan um Inntökuprufurnar en mig langaði að búa til nýjan. Núna eru þær bara að fara að skella á! Úff, stress? Allavegana…ég er með eina spurningu fyrir þá sem eru að fara, aðallega fyrir stelpurnar samt, hehe: hvernig ætlið þið að vera klæddar? Ég á í mikilli baráttu við sjálfa mig. Ég veit að við eigum að vera í þægilegum fötum þar sem við eigum auðvelt með að hreyfa okkur í. Sennilega verður einhver upphitun fyrst og svona. En mig langar líka...

Linsur í sund? (10 álit)

í Tíska & útlit fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Hæhæ Ég ætla að reyna að vera duglegri að fara í sund og synda. Málið er, ég sé allveg rosalega illa…þarf að nota gleraugu. Ég hef oft farið með gleraugun mín í sund því ef ég hef þau ekki sé ég nánast ekki neitt. En ef ég ætla að synda þá vil ég helst vera með sundgleraugu. Mér líður bara svo illa þegar ég sé svona lítið…sérstaklega ef ég er ein í sundlaug sem ég þekki nánast ekki neitt. Svo mig langaði að spurja (þó þetta sé e.t.v. heimskuleg spurning) er í lagi að ég myndi fara með...

Twelfth night (1996) (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Hæhæ Mig langar allveg rosalega mikið í myndina Twelfth night frá 1996 sem er byggð á samnefndu leikriti Shakespeare. Hefur einhver hugmynd um það hvar ég gæti mögulega keypt þessa mynd? Eða er kanski einhver hér sem á hana og væri til í að selja mér hana? Mig langar rosalega mikið í hana með íslenskum texta, þessvegna er ég ekki búin að prófa að skoða hvort hún er möguleg á einhverjum erlendum síðum. Koma svo, mig langar svooo í þessa frábæru mynd…með íslenska textanum! Er einhver hér sem...

Buxur... (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 14 árum, 9 mánuðum
Hæhæ Vitið þið hvar ég get fengið einhvernvegin svona buxur í svörtu? : http://www.eshop.is/Fataskapur/VaraInfo.aspx?id=101&MainCatID=316 :)

Afhverju var honum eytt? (19 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Afhverju var korkinum sem hét ,,Þessi Ragnar í Braselíu" eytt? Er að tala um korkinn sem Hysteria skrifaði…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok