Hæ allir :)

Ég veit það er þráður hérna fyrir neðan um Inntökuprufurnar en mig langaði að búa til nýjan. Núna eru þær bara að fara að skella á! Úff, stress?

Allavegana…ég er með eina spurningu fyrir þá sem eru að fara, aðallega fyrir stelpurnar samt, hehe: hvernig ætlið þið að vera klæddar? Ég á í mikilli baráttu við sjálfa mig. Ég veit að við eigum að vera í þægilegum fötum þar sem við eigum auðvelt með að hreyfa okkur í. Sennilega verður einhver upphitun fyrst og svona. En mig langar líka að vera fín….ekki fara bara í inntökuprufurnar í einhverjum íþróttafötum. Svo…já, ég veit ekki allveg í hverju ég á að vera. Hvað með ykkur?

Jæja, ég veit að þetta er óvirt áhugamál, en ég vona að einhver muni svara :)
An eye for an eye makes the whole world blind