Þetta er fjölgyðistrúarbragð sem ég er að semja fyrir minn eigin ævintýraheim sem er í mótun. Mig vantar endilega betra nafn á þetta trúarbragð. Í upphafi Í upphafi var það einungis Allur hinn eini. Í milljónir ára velktist hann um sjálfan sig, dýrð hans ólýsanleg enda var hann heimurinn og ekkert til þess að líkja við. En jafnvel í sínum óviðjafnanlega mikilfengleika leiddist Öllum og skipti sér í sex hluta: Örþikus, Flamor, Eros, Vand, Lísar og Markur. Fyrstu árþúsundin lék allt í lyndi og...