Í tilefni af því að þráður grande um leiðinlegustu vinnu sem þið hafið haft hefur verið heitasti þráðurinn í heila viku ætla ég að spyrja um hver sé skemmtilegasta vinna sem þið hafið haft.

Mín er að vinna á byggðasafni, ekkert að gera allan daginn fyrir utan tvo eða þrjá ferðamenn og bara hanga á netinu allan daginn. Svo já þrífa klósett en það var þess virði.