Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rhamsez
Rhamsez Notandi frá fornöld 44 ára karlmaður
784 stig
kv.

fjórir draga sig úr enska landsliðshópnum! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Paul Scholes, Michael Owen, Wes Brown og Alan Smith hafa allir dregið sig úr enska landsliðshópnum, sem mætir ítölum, vegna meiðsla. Það verður því einhver bið á að við fáum að sjá Wes Brown spila fyrir landsliðið en eins og hann er að spila þessa dagana verður þessi bið varla mjög löng.

Sheringham leikmaður októbermánaðar (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Teddy Sheringham var í dag útnefndur leikmaður októbermánaðar. Sheringham skoraði 5 mörk í fjórum leikjum í mánuðinum og hann er sagður eins og gott vín, verða bara betri með aldrinum! Arsene Wenger var útnefndur knattspyrnustjóri mánaðarins enda vann Arsenal alla leiki sína í mánuðinum og þar á meðal Manchester United.

Keilir með forystu! (5 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Golfklúbburinn keilir er kominn með 3 högga forystu á EM félagsliða í golfi sem fram fer Parco di Medici-vellinum í Róm. Keilir hefur slegið 288 högg. Reichwald-klúbburinn frá Þýskalandi er í öðru sæti á 291 höggi og Racing Club de France í því þriðja á 292 höggum. Nú er bara að vona að þeir haldi þesu áfram og komi Íslandi á kortið í golfheiminum!

Leeds aftur til spánar og Ítalíu! (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Dregið var í næstu umferð meistaradeildar Evrópu í morgun og eru riðlarnir svona: A riðill: Valencia, Sturm Graz, Manutd og panathinaikos B riðill: Milan, Deportivo, PSG og Galatasaray C riðill: Bayern Munchen, Arsenal, Moskva og Lyon D riðill: Real Madrid, Anderlecht, Lazio og Leeds Leeds þarf því aftur að fara til spánar og ítalíu til að mæta tveimur af sigurstranglegri liðum kepninnar. Arsenal og ManU ættu að eiga nokkuð greiða leið í átta liða úrslitin ásamt Bayern og Valencia en hinir...

26 sekúndur! (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það tók Michael Owen aðeins 26 sekúndur að koma boltanum í netið frá því hann steig inná völlinn í leiknum gegn Slovan Liberec í kvöld. Það tók hann hins vegar aðeins um 10 sekúndur frá því boltinn komst í leik að afgreiða hann í netið. Nokkuð gott hjá stráknum eftir að hafa verið frá vegna höfuðmeiðsla í síðustu 5 leikjum Liverpool! Annars endaði leikurinn 3-2 fyrir Liverpool og skoruðu Nick Barmby og Emile Heskey hin mörk Liverpool. Samanlagt fór því viðureignin 4-2 og Liverpool því komið...

Hugleiðingar um Konuna og Manninn! (0 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 5 mánuðum
The woman is like the earth: At 20 she’s like Afrika – semi explored. At 30 she’s like India – warm mature and mysterious. At 40 she’s like America – technically perfect. At 50 she’s like Europe – all in ruins. At 60 she’s like Siberia – everyone knows where it is but nobody wants to go. ________________________________________________________________ The Man is Like the Train: At 20 years he is like the local – It stops at every station At 30 years he is like the special – It stops only at...

Leeds aðdáandi stunginn! (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Leeds aðdáandi er þungt haldinn á sjúkrahúsi í Mílanó eftir að hafa verið stunginn mörgum sinnum eftir að átök brutust út í morgun á milli stuðningsmanna Leeds og AC Milan. Það virðist bara ekki eiga af Leedsurum að ganga þessa dagana, bæði stuðningsmenn og leikmenn meiðast hver á fætur öðrum. Maður gæti farið að halda að það væri einhver óheppni föst við liðið! Annars verður maður að vona að maðurinn sé ekki lífshættulega slasaður og að Leeds nái stigi í kvöld og skilji Barcelona eftir í riðlinum!

Meira af Adam og Evu (31 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Adam og Eva voru rússnesk!! Þessu til sönnunar bendi ég á að Þau létu sér nægja að deila einu epli, Þau höfðu engin föt til að skýla sér og samt kölluðu þau þetta paradís!

Úrslit óformlegrar könnunar! (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Fyrir 5 dögum sendi ég inn grein undir heitinu skoðanakönnun og var þetta óformleg könnun á því hvaða lið á flesta stuðningsmenn á huga.is Staðan eftir 5 daga er eftirfarandi: Manchester United – 9 Liverpool – 7 Leeds United – 2 Arsenal - 1 Chelsea - 1 Tottenham Hotspurs - 1 Sheffield wednesday - 1 Newcastle United - 1 Þetta ætti að gefa stjórnendum huga ákveðna hugmynd um hvaða lið ætti að kjósa um í opinberri skoðanakönnun á síðunni!

Berger frá út tímabilið? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef satt reynist eru þetta náttúrulega afar slæm tíðindi fyrir Liverpool!

Skoðanakönnun! (29 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvernig væri að finna út hvaða lið í enska boltanum á flesta aðdáendur á huga? Þetta er líka áskorun til vefstjóra um að skipta oftar um skoðanakönnun en á mánaðarfresti! Ég er Liverpool fan og búinn að vera það frá því ég var 8 ára. Liverpool: 1 önnur lið: 0

Íslendingar gera það gott í Evrópu! (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Síðasta helgi var nokkuð góð fyrir liðin í Evrópu sem hafa Íslendinga innanborðs. Á Englandi skoraði Arnar Gunnlaugsson og tryggði Leicester sigur, Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn þegar Ipswich vann Middlesboro, Chelsea, lið Eiðs Smára Guðjohnsen, sigraði Tottenham, Guðni Bergsson skoraði fyrir Bolton sem gerði jafntefli í fyrstu deildinni, Heiðar Helguson lék síðustu mínúturnar með Watford sem gerði líka jafntefli í fyrstu deildinni, Bjarni Guðjónsson skoraði fyrir Stoke sem vann sinn...

Sven Goran næsti þjálfari Enskra? (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nýjustu fregnir herma að Sven Goran Erikson verði ráðinn næsti þjálfari Englendinga frá og með 1. júlí 2001. Mín skoðun er sú að Englendingar séu að gera mikil mistök með því að ráða hann og pressan á honum að ná árangri verður gríðarleg. Enskir knattspyrnuáhugamenn eiga ekki eftir að styðja við bakið á honum nema honum takist að stýra liðinu til sigurs í svo gott sem hverjum einasta leik og miðað við gengi enska landsliðsins undanfarið á það eftir að reynast ansi erfitt. Englendingar hafa...

Arnar Gunnlaugs byrjaður aftur? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Arnar Gunnlaugsson kom inná sem varamaður í liði Leicester gegn Derby um helgina og skoraði sigurmarkið í leiknum. Vonandi (fyrir hann) fær hann nú fleiri tækifæri með Leicester liðinu til að sanna sig á ný!

The Bum! (0 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
A bum asks a man for two dollars.The man says, “If I give you money, will you buy booze?” The bum answers, “No.” Then the man wonders, “Well, will you gamble it away?” The bum says, “No.” Finally the man asks, “Then will you come home with me so my wife can see what happens to a man who doesn't drink or gamble?”

Berti Vogts næsti þjálfari Englendinga? (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nú hefur Berti Vogts bæst í hóp þeirra sem líklegastir eru til að verða næsti landsliðsþjálfari Englendinga. Vogts hefur sjálfur lýst því yfir að hann sé mjög spenntur fyrir starfinu. Terry Venables er þó enn efstur á blaði veðbanka í bretlandi yfir næsta þjálfara en Berti Vogts fylgir fast á hæla hans. Mín persónulega skoðun er sú að það yrði stórslys ef annar hvor þessara yrði ráðinn. England þarf á tiltölulega ungum, breskum þjálfara að halda sem yrði óhræddur við að beita ungu og...

laumufarþegi (0 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
A Sailor is sitting at a bar one night and is chatting it up with a beautiful blonde. After some drinks she starts to cry and tell him the sad story that she is Polish and misses home terribly but can't afford to buy a ticket to go home. The sailor tells her his profession and makes a deal with her. “I'll hide you away on my ship on one condition. You have to have sex with me when I ask.” She hugs him, crys and agrees. So late that night they sneak on to his ship and he hides her in a big...

Stysti brandarinn! (9 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
A man walks into a bar - “ouch” he says! vitiði um einhvern styttri?

Meijer lánaður til Preston! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Liverpool hefur samþykkt að lána Erik Meijer til Preston þar sem liðið á í miklum vandræðum með meiðsli framherja sinna, þar á meðal Bjarka Gunnlaugs. Lánssamningurinn er í einn mánuð og ljóst að Meijer mun koma til með að hjálpa Preston talsvert í baráttu þeirra við toppinn í fyrstu deildinni.

Skoðanakönnun! (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvernig væri nú að fara að skipta um skoðanakönnun á Ensku deildinni. Þessi könnun milli Man U og Chelsea er búin að vera hérna allt of lengi og leikurinn milli þeirra er löngu búinn!

Copy/Paste! (1 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég hef ekkert á móti því að fólk copy/paste brandara sem það hefur lesið á netinu og finnst fyndnir en það mætti hins vegar laga þá þannig að það komi ekki bara eitt til tvö orð í hverja línu. Ég get ekki ímyndað mér að margir nenni að lesa brandara sem ætti eðlilega að komast fyrir í 7-8 línum en er hins vegar dreift á 20-30 línur. Margir af þessum bröndurum eru mjög fyndnir en þeir missa samt sem áður sjarmann við þessa teygingu. Þetta er svipað og að heyra einhvern segja brandara sem...

Liverpool fer á kostum! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Liverpool fór hreinlega á kostum gegn Derby í gær og greinilegt að liðið er á réttri leið. Emile Heskey stakk loksins upp í alla sem hafa gagnrýnt hann og sýndi hversu gríðarlega öflugur hann er. Hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu, með þrumuskoti við vítateigslínuna og svo að lokum eitt pot mark sem sýnir bara það að hann hefur allt til brunns að bera sem góður framherji þarf (nema kanski helst að hann vanti smá hraða). Patrik Berger sýndi það líka í leiknum hversu sárt Liverpool liðið...

Heimsmet í markaskorun! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Heimsmetabók Guinnes hefur staðfest að Wycombe Wanderers hafi sett heimsmet með því að skora tvö mörk með 9 sekúndna millibili gegn Peterborough United. Jamie Bates skoraði með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks í leiknum og í upphafi sinni hálfleiks óð Jermaine McSporran í gegnum vörn Peterborough, án þess að nokkrum öðrum leikmanni tækist að koma við boltann, og skoraði þegar 9 sekúndur voru liðnar af hálfleiknum. Þess má geta að þetta voru einu mörkin sem skoruð voru í leiknum.

Frábær leikur gegn N-Írum (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Að mínu mati hefur Íslenska landsliðið aldrei leikið jafnvel og í leiknum gegn N-Írum í gær. Liðið gerði aðeins ein mistök allan leikinn (sem reyndar kostaði okkur næstum því mark) en átti hins vegar urmull af góðum færum. Sigurinn hefði getað orðið miklu stærri ef ekki hefði komið til frábærrar markvörslu markvarðar N-Íra og ótrúlegrar óheppni eða klaufaskapar Ríkharðs, Þórðar og Eiðs Smára fyrir framan markið. En þeim tókst samt að skora markið sem skipti máli og nú er bara að vona að þeim...

varið ykkur á krókódílunum! (0 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 6 mánuðum
The Louisiana State Department of Fish and Wildlife is advising hikers, hunters,fishermen, and golfers to take extra precautions and keep alert for alligators. They advise people to wear noise-producing devices such as “little bells” on their clothing to alert, but not startle the alligators, unexpectedly. They also advise the carrying of “pepper spray” in case of an encounter with an alligator. It's also a good idea to watch for fresh signs of alligator activity and be able to recognize the...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok