Það tók Michael Owen aðeins 26 sekúndur að koma boltanum í netið frá því hann steig inná völlinn í leiknum gegn Slovan Liberec í kvöld. Það tók hann hins vegar aðeins um 10 sekúndur frá því boltinn komst í leik að afgreiða hann í netið. Nokkuð gott hjá stráknum eftir að hafa verið frá vegna höfuðmeiðsla í síðustu 5 leikjum Liverpool!
Annars endaði leikurinn 3-2 fyrir Liverpool og skoruðu Nick Barmby og Emile Heskey hin mörk Liverpool. Samanlagt fór því viðureignin 4-2 og Liverpool því komið áfram í næstu umferð!
kv.