Heimsmetabók Guinnes hefur staðfest að Wycombe Wanderers hafi sett heimsmet með því að skora tvö mörk með 9 sekúndna millibili gegn Peterborough United.

Jamie Bates skoraði með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks í leiknum og í upphafi sinni hálfleiks óð Jermaine McSporran í gegnum vörn Peterborough, án þess að nokkrum öðrum leikmanni tækist að koma við boltann, og skoraði þegar 9 sekúndur voru liðnar af hálfleiknum.

Þess má geta að þetta voru einu mörkin sem skoruð voru í leiknum.
kv.