Leeds aðdáandi er þungt haldinn á sjúkrahúsi í Mílanó eftir að hafa verið stunginn mörgum sinnum eftir að átök brutust út í morgun á milli stuðningsmanna Leeds og AC Milan.
Það virðist bara ekki eiga af Leedsurum að ganga þessa dagana, bæði stuðningsmenn og leikmenn meiðast hver á fætur öðrum. Maður gæti farið að halda að það væri einhver óheppni föst við liðið!
Annars verður maður að vona að maðurinn sé ekki lífshættulega slasaður og að Leeds nái stigi í kvöld og skilji Barcelona eftir í riðlinum!
kv.