Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rancid97
Rancid97 Notandi frá fornöld 37 ára karlmaður
252 stig
,,Maby the traidor will betray himself and do good that he does not intend."

Í Hafnarskógi (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Jökullinn fagri glansar, fuglar í skóginum rísa. Tunglið við hafið dansar, stjörnurnar himininn lýsa. Mér þætti vænt um ef að ég fengi ykkar álit á þessu litla ljóði. Takk fyrir.

Alþingi (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Alþingi Hvert hefur farið þjóðarinnar stolt, hún unir sátt við hvað sem hún fær. Ei tel ég þetta almenningi holt, aðallinn kýlir á vömbina og hlær. Fólk gleymir honum litla bróður, hann á sinn hlut mun minni. Ekki er honum afarkosturinn góður, það sem hann hefur nægir að sinni. Hvað hefur orðið af dyggð og trú , hafa allir gleymt sögu þjóðar. Hún barðist fyrir rétt sínum sú, þá fæddust allar hetjurnar góðar. Í hvert sinn er alltaf einn sauður, Hann brýtur niður öll vinnuhjú. Áður var Gissur...

Risk, Napoleon (4 álit)

í Borðaspil fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Góðan daginn. Þetta er aðeins óhefðbundið risk-spil. Það er sama grunnhugmynd á baki því og hins hefðbundna risk en þó er það mun flóknara en einnig mun skemmtilegara. Í stað þess að öll jörðin sé vígvöllurinn þá er aðeins notast við Evrópu og nokkur lönd í N-Afríku og svo litlu Asíu. Sagan á bakvið spilið er Napoleon stríðið þar sem að Frakkland var sigrað eftir um 20 ára stríð við Waterloo. Hægt er að vera eitt af eftir töldum löndum: Frakkland, Bretland, Austurríki, Rússland og Prússland....

Enn meira um Tom B. (33 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Jæja ég skrifaði grein um hann Tom kallinn fyrir nokkru síðan en áður en ég náði að birta hana þá kom inn grein um nákvæmlega sama viðfangsefni og voru greinarnar þar afleiðandi nauðalíkar. Þar sem lítið er um að vera þá hef ég ákveðið að birta mína en þó breyttri og vonandi aðeins öðruvísi og ef ekki eitthvað dýpri en margar aðrar greinar/umræður eða eitthvað annað sem fjallar um hann Tom Bombadil. Allir sem hafa lesið Fotr vita að hann Tom er hvorki: maður, álfur né dvergur. Hann getur...

Treasure island (Gulleyjan) (5 álit)

í Bækur fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég hef aldrei skrifað á þessu áhugamáli áður svo ég biðst velvirðingar ef grein mín er eitthvað öðruvísi en aðrar hér og eða einhver hefur áður skrifað grein um þessa bók. Ég las bókina á ensku svo ég kann engin nöfn á íslensku og notast ég því við þau ensku. Bókin Treasure island, eða Gulleyjan, er eftir skoska rithöfundinn Robert Louis Stevenson. Hann skrifaði söguna árið 1981 og kom hún fyrst út síðar sama ár. Á kránni Admiral Benbow vann Jim Hawkins ásamt foreldrum sínum. Sá er sótti...

Lofkvæði föðurlandsvinar (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Þetta er bara svona smá kvæði sem mér datt í hug að birta hérna. Þetta á að vera einhvernvegin í áttina að gömlu þjóðskáldunum. Ég vona að þetta sé ekki of ömurleg tilraun. En satm endilega verið hreinskyli. Undan himinbárunnar þunga dynur regnið á landið unga. Dreifist um lendur vænar auðgar fallegar sveitir grænar. Handan sjávarsins dökku strandar synda fiskarnir innan landsins handar. Bjargað hafa byggð eyjarinnar byggt upp styrk sálu minnar. Ofan frá fjallanna háu tindum fylgjast...

Vaðalfjöll (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 1 mánuði
Upp standa og himni ná, svo hátt fara að skaparann sjá. Standa sem vörður tvær um þjóðhetjurnar þær. Sem riðu um landinu á, drukknuðu firðinum frá. Sjá þar eyjar er umlykur sær, svo gjafmildur og tær. Standa á meðan himinn er, dreifa visku sem í hjarta ber. Fylgjast með hag í bú, en það er eimdin sú. Undan fáfræði enginn ver, nema kannski lítið kver. Sem að fúslega lest þú, verður þá kannski lærdóms brú.

Hvaðan fékk Tolkien innblástur (48 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 2 mánuðum
JRR Tolkien hafði brennandi áhuga á íslenskum fornsögum og þjóðsögum eins og kannski margir vita. En ekki allir vita hvað í verkum hans er undir áhrifum frá þessum sögum. Ég ætla að reyna að benda á sumt sem gæti verið komið úr norrænum verkum en ekkert ber að taka alvarlega og ef að staðreyndir standast ekki þá biðst ég fyrirfram afsökunar. Til að byrja með þá eru öll nöfnin á dvergunum sem fara með Bilbo í Hobbitanum tekin úr Eddunni. Sem og nafnið Gandalfur sem er reyndar nafn á dvergi....

Trú (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég kynni að meta það ef að ég fengi ykkar álit hvort sem það er gott eða slæmt. Trú Himinn er að hrapa heimur að farast. Menn gugnast og gapa en Guð þá inn skarast. Á harðri leið niður hratt hverfur þín sál. En strax kemur friður Guð stoppar allt stál. Hamingja hratt dvínar hremmingar skellast yfir. Illar eru skoaðanir þínar Guð einn á himnum lifir. Hefur þú söggar hendur heldur þú í við mig. Guð einn efstur stendur, ég lifi og mala þig. Takk fyrir.

Gollum (7 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hann Gollum var nú alltaf í svo miklu uppáhaldi hjá mér svo ég ætla að birta hér eina grein um hann. Ég vil annars byrja á að segja við þá sem ekki hafa lesið LOTR og kannski líka Hobbitann þá er þetta eiginlega einn stór #SPOILER#. Gollum bar mörg nöfn eins og Sméagol eins og hann hét áður en hann fékk hringinn. Hann talaði oft um sjálfan sig (og hringinn) í þriðju persónu og notaði þá misjafnt nöfnin Gollum og Sméagol. Mér fannst hann nota Sméagol þegar hann vildi fá samúð eða vægð frá...

Ljóð Tolkiens (2 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég ætla að byrja á því að segja að fyrir þá sem ekki hafa lesið Lord of the rings þá kemur #SPOILER#. Í öllum bókum Tolkien´s þá eru mörg ljóð. Ég ætla ekki að fyra að þylja upp þau öll en koma með það sem ég held mest uppá. Mér finnst líka gaman þegar maður les Lord of the rings aftur þá sér maður hvar hann er að koma með einskonar vísbendingar um það sem gerist síðar. Það gerir hann í þessu ljóði sem Frodo les í bréfi Gandalf´s sem Butterbur lét hann fá. All that is gold does not glitter,...

Þegar hvín í kára (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta ljóð minnir kannski á annað ljóð eftir mig hérna á huga en það heitir Þegar nóttin sækir á. Ég hef mikið dálæti á skáldum sem yrk´ja um landið og náttúruna og þá í bundnu máli. Þegar hvín í kára. Þegar hvín í kára þá hópast huldumenn, hér hafa verið til ára haldast vart um senn. Fallið er að vetri þá fer fólkið burt fjöllin reynast betri þegar flýja á Surt. Drepið hefur marga álfa borðað með bestu lyst hesta, kindur og kálfa þetta allt hefur hann rist. Hann býr neðst í dalnum og sækir...

Þegar nóttin sækir á (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þegar nóttin sækir á Þegar nóttin sækir á fara tröllin á stjá. Drepa menn og kindur þjóta um sem vindur. Klífa fjöllin há til mannabyggð sjá. Galdra fram feiknar byl, senda fólkinu til. Þjóta niður hlíðar stórar og víðar. Hoppa yfir gil rífa upp húsa þyl. Bóndi griða biður þau berja hann niður. Öllu gulli stela stinga börn og fela. Aldrei kemur friður, þetta er þeirra siður.

Þegar nóttin sækir á (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þegar nóttin sækir á Þegar nóttin sækir á fara tröllin á stjá. Drepa menn og kindur þjóta um sem vindur. Klífa fjöllin há til mannabyggð sjá. Galdra fram feiknar byl, senda fólkinu til. Þjóta niður hlíðar stórar og víðar. Hoppa yfir gil rífa upp húsa þyl. Bóndi griða biður þau berja hann niður. Öllu gulli stela stinga börn og fela. Aldrei kemur friður, þetta er þeirra siður. Þetta er fyrsta ljóðið sem ég skrif á huga. Ég hef samt skrifa helling af ljóðum. Þið megið endilega segja ykkar álit...

Dulmál (62 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég sá leik í Moríanámunum hér á huga eftir Ratatosk. ´Ég á hvað að endurvekja þann leik í sömu mynd. Ég mun koma með setningu úr einhverri af bókum Tolkiens á dulmáli, það eruð svo þið sem að sendið inn lausnir hérna fyrir neðan. Tilkynna skal úr hvaða bók tilvitnunin er en sá sem að getur dulmálið skal senda inn sitt eigið næst, og þannig gengur það áfram þar til allir eru komnir með ógeð af þessu. Þessi setning er úr The two towers. “Hd rdt zqbw mdow fqmv? Izr zqbw rdt ywlpwmgws gd cwkdcg...

Trivia komið aftur! (17 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Jæja, ég samdi hérna á huga áður fyrr 10 gátur um persónur úr hugarheimi Tolkeins. Þetta eru litlar gátur í ferskeytlu formi sem öllum er velkomið að svar hérna fyrir neðan eða koma með sínar egin. Ég er ekki eins fróður og þið flest um Tolkien svo ég bið ykkur að fyrirgefa en þó tel ég þetta nokkuð fjölbreitt val á persónum. Seinna mun ég birta rétt svör hérna fyrir neðan. Fyrri gátur mínar eru hérna einhverstaðar í greinayfirleitinu. Það eru engin verðlaun þvímiður, í boði, ja.. nema...

Tolkien-trivia spurn. (11 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég er kannski ekki jafn fróður um hugarheim Tolkiens eins og margir sem hafa verið að skrifa hérna og þetta er því kannski auðvellt eða að einhverju leiti vitlaust en ég er bara áhugamaður svo ekki ber að taka þetta alvarlega. Well anyway ég hafði lesið gátur um persónur úr bókum Tolkiens og eru hérna því nokkrar. Ykkur er velkomið að svara og mun ég koma með rétt svör til baka. Einnig er ykkur velkomið að koma með eigin gátur. 1. Traustur vinur hann var, viljasterkur og knár. Herrann sinn...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok