Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Quadro
Quadro Notandi frá fornöld 438 stig

Ný tilkynning frá Stjórnanda, (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Sælir félagar, ég hef sent inn nýja tilkynningu, vinsamlegast kannið hana og komið fram með ykkar álit. Annars óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Quadro

Ársreikningar Reykjavíkurborgar (9 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Jæja nú var að koma niðurstöður ársreikninga Reykjavíkurborgar. Fyrst verður að nefna hagnað upp á rúma 2 milljarða sem er svo sem ágætismál ef skuldir hefðu lækkað í samræmi. Reyndar var það svo að hreinn rekstur borgarinnar skilaði tapi upp á 3 milljarða króna sem er ótrúlega léleg niðurstaða í því árferði sem nú er. Skuldir Reykjavíkurborgar jukust um 10 milljarða á árinu 2002 sem er enn eitt áfallið fyrir forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar. Er ekki kominn tími til að menn sjái að hún...

Nú gengur þú of langt Ingibjörg Sólrún! (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Á dögunum varst þú stödd á vegum Samfylkingarinnar í grunnskóla í Kópavogi til að kynna þig og þína stefnu. Vert er að skoða af hverju þú varst að predika fyrir börnum en það er þitt mál. Eitt er víst að þú getir snúið út úr og jafnvel logið að okkur eldri kjósendum, þar sem við höfum þó vit á að þekkja muninn á réttu og röngu. En þegar þú segir við börnin okkar í grunnskólum landsins að aðeins tveir menn á Íslandi séu hlynntir stríði!, Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddson gengur þú of langt....

Háskólabókin í USA (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Sælir Ég er búinn að fá nýju Ping bókina þar sem farið er yfir alla háskólana í USA, ef þið hafið áhuga og eruð að reyna fyrir ykkur úti þá endilega hafið samband og ég get leyft ykkur að líta í hana Með kveðju Quad

Breytingar á St. Andrews (2 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Forsvarsmenn St Andrews vallarins í Skotlandi hafa legið undir ámæli að undanförnu þar sem þeir neita að breyta vellinum. Margir af helstu kylfingum heims hafa kvartað yfir glompum vallarins eins og á 17 holu vallarins eða “Road hole”. Þeir segja bönkerana ekki sanngjarna og réttast væri að auðvelda þá aðeins til að bæta leik á vellinum. Ekki eru St. Andrews menn nú öllu sammála um þetta og ætla sér ekki að breyta einu né neinu enda um að ræða virtasta völl heims, en án efa á enginn eins...

Háskólar í USA (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Sælir félagar Vildi bara benda ykkur á að nýja Ping bókin svokallaða um háskólana í USA er komin út. Hægt er að panta hana á netinu á http://www.collegegolf.com. Þessi bók býr yfir öllum upplýsingum um háskólana í USa sem bjóða upp á styrki, hvað kostar að nema þar, hvernig aðstæður eru, ásamt öllum niðurstöðum móta frá síðasta ári. Þessi bók er ómissandi fyrir þá sem hafa áhuga á að nema við háskóla í Bandaríkjunum. Þarna er farið í gegnum hvað þú þarft að gera til að fá réttindi í...

Augusta (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Málin virðast vera fara í hart vegna afstöðu Augusta Nationals klúbbsins um rétt kvenna til að leika á vellinum. Í fyrsta skipti sögunnar hefur meðlimur klúbbsins sagt af sér í mótmælaskyni. Það verður því fróðlegt að fylgjast með framgangi mála á næstunni

Oliver Kahn í golfi (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Oliver Kahn Markmaðurinn góðkunni og fyrirliði Þýska landsliðsins í knattspyrnu skellti sér í golf um helgina, það er hins vegar ekki aðalatriði sögunnar, þar sem hann átti að vera í sjúkraþjálfun þar sem hann fékk frí frá liði sínu í þýsku deildinni um helgina. Afskaplega skil ég hann samt vel að fara frekar í golf en að keppa í fótbolta!! Reyndar fór ferðin ekki vel í þjálfara liðsins og fær hann væntanlega stóra sekt frá liði sínu. Aldrei að vita að hringurinn hafi því kostað jafnmikið og...

Myndir (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Á næstunni mun ég senda inn myndir af æfingum sem þið getið notast við í vetur, sennilega mun ég senda inn 1 á viku eða eftir því hversu mikinn tíma ég hef til að búa þær til, þið getið einnig séð þær jafnóðum á vefsvæðinu mínu http://kasmir.hugi.is/quadro (svona þegar ég er búinn að setja hana upp) með kveðju Quadro

Stærð mynda (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er búinn að setja upp nokkrar myndir af góðum æfingum sem skila geta góðum árangri í vetraræfingum í framhaldi af greininni minni, því miður eru þær helst til stórar fyrir HUGA. Er stærð á innsendum myndum heilagur eða mega þær vera örlítið fleiri kb en sagt er til um?

Uppfærsla á síðu (1 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það væri ágætt að fara að fara yfir suma kubbana hérna, til að mynda úrslitin frá því í holukeppninni sem blasa ávallt við manni á forsíðu, eitthvað sem admin gæti farið að huga að, ásamt því að viðra nýjar hugmyndir hérna. Nýtum þann meðbyr sem myndast hefur á síðustu vikum á áhugamálinu hérna Quadro

Staða eftir fyrri umferð föstudags (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ryder keppnin er komin í fullan snúning og eftir fyrri leiki föstudagsins er Evrópa yfir 3-1 hægt er að fylgjast með stöðu mála á http://www.rydercup.com

Liðaskipanir í Ryder Cup (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Eins og svo margir vita er mikið mál að velja saman í lið í Ryder Cup, hver spilar með hverjum? Venjulegast hafa fyrirliðarnir reynt að setja saman liðin eftir persónuleika og leikstíl en núna blasir annað við þeim. Hvernig boltum spila þeir með. Tiger Woods er með Nike Tour Accuracy TW en David Duval Notar DD týpu, munurinn er að Duval spinnar boltanum mun meira og þarf því harðari bolta en Tiger. Davis Love spilar með Pro V1 Star en Michelson með Pro V1 sem flýgur hærra en Star útgáfan og...

Furðuleg umfjöllun (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Á síðum Golf.is er að finna enn eina neikvæðu umfjöllunina um sjónvarpsmálin. Svo vill til að Sjónvarpið er talið sýna óeðlilega lítið frá Ryder keppninni þetta árið en í raun og veru sýna þeir 22 af 26 tímum (skv heimildum af golf.is) Reyndar finnst mér það ögn fyndið hvernig Logi Bergmann Eiðsson sendir fólkinu tóninn með ummælum sínum, enda er ekkert óeðlilegt að það vanti örfáa tíma á útsendinguna svo lengi sem þeir sýni háspennutímana sem oftar en ekki eru seinnipart dags. Gott mál hjá...

Tiger segir upp þjálfaranaum (2 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Óstaðfestar fréttir herma að Tiger Woods hafi sagt upp þjálfara sínum til margra ára Butch Harmond, Tiger er sagður óánægður með hversu mikla athygli Butch hafi fengið út af sínu golfi og grætt of mikið á honum, ætlar hann sér að vinna sjálfur í sínum málum framvegis (ætli Tigerinn sé að fara yfir um í athyglinni loksins)

Meira af Evrópumóti einstaklinga (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Lítið hefur gengið hjá íslensku strákunum í Portúgal á Evrópumóti einstaklinga sem fram fer þessa dagana. 3 keppnishringur fer fram í þessum töluðu orðum og er skorið misjafnt eftir strákunum. Skv. heimildum er völlurinn mjög þröngur grínin loðin og völlurinn mjög blautur eftir rigningar og boltinn “plöggast” þ.a.l. víða. Einnig eru aðeins sandar og auðnir í kringum brautir sem gera völlin mjög þröngan og erfiðan yfirferðar, enda eru ekki nema örfáir spilarar undir pari í mótinu. Skorið...

Evrópumót einstaklinga (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Evrópumót einstaklinga fer fram Lissabon í Portúgal í þessari viku. 4 íslenskir kylfingar héldu utan á sunnudag, þó svo að Ísland eigi keppnisrétt fyrir 6 þar sem við erum A þjóð. Þessir 4 eru, Sigurpáll Geir Sveinsson, Helgi Birkir Þórisson, Heiðar Davíð Bragason og Örn Ævar Hjartarson. Frekari upplýsingar er að finna á http://www.fpg.pt/fpg_european_amateur_champ_menu.htm eða á golf.is Ég læt svo vita hvernig völlurinn er þegar ég hef heyrt í strákunum

PGA meistaramótið (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Síðasta af fjóru stóru mótunum fer fram núna á Hazeltine golfvellinum í Minnesota í Bandaríkjunum. Tiger Woods er efstur í umfjöllun fjölmiðlamanna í Bandaríkjunum eins og vanalega en hann á möguleika á að verða fyrstur til að vinna “The US Grand Slam” eða öll 3 stóru í Bandaríkjunum á árinu. Hægt er að fylgjast með stöðu mála á http://scores.golfweb.com/scoreboards/pgachampionship/2002/leaderboard/index.html Þetta ætti að færa ykkur beint á röð efstu manna. Eins og stendur er búið að fresta...

Merkilegast á landsmóti (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sælir golffélagar Þið kannski mynduð leggja mál ykkar við því hvað ykkur fannst merkilegast á nýafstöðnu landsmóti karla, mér finnst nú erfitt að velja á milli en þessi atriði standa þó upp úr 1. Sigur Sigurpáls á 271 höggi 9 undir pari 2. Sigur Ólafar og nýtt vallarmet 285 högg 3. Vallarmet Ómars 64 högg 6 undir pari 4. Vallarmet Herborgu 68 högg 2 undir pari Svo eru einnig margir aðrir atburðir sem þið þekkið kannski betur, endilega að láta ykkar skoðun í ljós

Strandarvöllur (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Strandarvöllur eða Hellan skartaði sýna allra fegursta um helgina í Landsmóti karla og hvet ég hvern kylfing að drífa sig suðureftir og spila hring á einum af bestu völlum Íslands í dag, hraðar flatir og þar sem meira er, mjúkar og fínar þannig að þær taka vel við.

Sveitakeppni karla í golfi (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Eftir líflegt sumar þá fara sveitakeppnir senn í hönd, sveitakeppni karla fer fram síðustu helgina í ágúst og væri gaman að vita hverja þið teljið að fari með sigur af hólmi í fyrstu deildinni? Mín spá er G.K. þó að Reykvíkingarnir séu alltaf sterkir (G.R.)

Sextugasta landsmóti Íslands lokið (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þá er landsmótinu lokið og voru það Sigurpáll Geir Sveinsson og Ólöf María Jónsdóttir sem báru sigur úr býtum í einhverju skemmtilegasta landsmóti í manna minnum. Það var Júlíus Hallgrímsson sem háði harða baráttu við Sigurpál síðasta daginn en mátti játa sig sigraðan er hann fékk tvöfaldan skolla á 71. holu mótsins. Ólöf María setti vallarmet á 72 holunum og bætti þar með met Karenar Sævarsdóttur, en það var ekki einu vallarmetin sem litu dagsins ljós á Frábærum Strandarvelli um helgina,...

Quarashi (0 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum
Rett langadi til ad oska Quarashi felogum til hamingju med frabaerar mottokur a MTV sjonvarpsstodinni her i Bandarikjunum, Stick'em up er buid ad vera a fullu i spilun undanfarnar vikur og greinilegt ad their eru ad gera goda hluti her i USA Fra USA Quadro

Íslandsmót í golfi kært! (0 álit)

í Golf fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Eins og margir hafa tekið eftir var framkvæmd nýafstaðins landsmóts í lausu lofti. Á sunnudag barst svo formleg kæra til mótsnefndar þar sem farið var fram á ógildingu mótsins á þeim forsendum að reglugerð golfsambandsins hafi verið brotin á 3 vegu. Hægt er að finna einstaka þætti á spjalli golf.is. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig tekið verður á þessu máli í ljósi þess að Sýn virðist hafa átt nánast allan þátt í að reglurnar voru brotnar, svo að útsendingar þeirra kæmust betur til skila.

Framkvæmd landsmóts (1 álit)

í Golf fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Eins og margir hafa tekið eftir sem lagt hafa leið sína upp í Grafarholt er landsmót í gangi sem sumir reyndar eru farnir að líkja við skrípaleik. Reglugerðin margbrotin og menn eru loks farnir að missa alla trú á þeim sem halda utan um stjórnartaumana hjá Golfsambandinu. Mig langar því að henda einni spurningu fram, þeir sem sjá um þessi mál hjá GSÍ eiga þeir ekki að taka ábyrgð á gerðum sýnum? Ef svo er, er þá ekki kominn tími til að skipta út eitthvað af þessum mannskap? Þetta er ekki...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok