Á dögunum varst þú stödd á vegum Samfylkingarinnar í grunnskóla í Kópavogi til að kynna þig og þína stefnu. Vert er að skoða af hverju þú varst að predika fyrir börnum en það er þitt mál.
Eitt er víst að þú getir snúið út úr og jafnvel logið að okkur eldri kjósendum, þar sem við höfum þó vit á að þekkja muninn á réttu og röngu. En þegar þú segir við börnin okkar í grunnskólum landsins að aðeins tveir menn á Íslandi séu hlynntir stríði!, Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddson gengur þú of langt. Slík rangmæli eru fyrir neðan þó þína virðingu og ég vona að fáir aldrei tækifæri til að sinna nokkru einasta starfi sem ábyrgð hvílir á í þessu landi því þá verð ég að hugsa mig betur um hvar ég el mín börn upp í framtíðinni.