Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ProV1
ProV1 Notandi frá fornöld 1.402 stig
——————-

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er Titleist pokinn hans Ernie Els.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hérna er John Daly ásamt hinum í Pinnacle Distance liðinu. Þeir keppa í hverjum mánuði við almenning. Ef einhver dræver lengra en þeir þá fær sá sami $10.000 USD.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hér er Paul Casey með bikar sinn sem hann hlaut eftir sigur á “The Benson & Hedges International Open” sem leikið var á Belfry. Þetta var annar sigur Casey í ár og er hann að verða æ betri og betri.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
David Toms leiðir með 5 höggum fyrir síðasta hring á “Wachovia Championship” í Charlotte (US PGA). Toms segir að hann sé að slá lengri teighögg með nýja dræverinum sínum og það hafi hjálpað honum mest.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Englendingurinn ungi Paul Casey leiðir fyrir síðasta hring ásamt tveimur öðrum á “Benson and Hedges International Open”. Casey hefur unnið eitt mót í ár.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er Adam Scott. Hann hefur sigrað á einu móti á US PGA ár og er í 34. sæti á heimslistanum. Scott er búinn að vinna sér inn $676,650 á þessu ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Lee Westwood er vonandi að ná sér á strik aftur.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þessi snilldarmynd var á nevadabob.is Þeir geta látið merkja Titleist boltana manns að eigin ósk og það kostar ekkert aukalega. Einhver snillingur hefur merkt þennan svona skemmtilega!

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Fredrik Jacobson hélt forskoti sínu fyrir síðasta hring og sigraði með einu höggi á Algarve Open de Portugal (European Tour). Jacobson chippaði í fyrir erni á 17. holu.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Svíinn Fredrik Jacobson leiðir Algarve Open de Portugal mótið á Evrópsku mótaröðinni með einu höggi þegar einum hring er ólokið.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Davis Love III er einu höggi frá Craig Barlow á MCI Heritage mótinu. Love hefur sigrað þetta sama mót 4 sinnum og þykir sigurstranglegastur þar sem hann bæði kann mjög vel við sig á Pearl Harbour vellinum og hefur verið í feikna formi á þessu ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Titleist spilarinn Ben Crane vann sinn fyrsta sigur á ferlinum þegar hann sigraði á BellSouth Classic í dag á -16 undir pari. Sigur Crane var sérstaklega sætur þar sem að hann lék síðustu tvo hringina á 64 og 63 höggum eða -17 undir samtals. Kennir okkur að allt er hægt í 72 holu móti! Hérna má sjá hvað Crane notar í sínum poka: http://www.titleist.com/players/details.asp?ID=1143

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ernie Els hefur verið meiddur á úlnliði undanfarið og lítið getað keppt. Hann byrjaði tímabilið ótrúlega vel og nær vonandi að jafna sig fyrir Masters.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er Ping spilarinn Chris DiMarco. Hann leiðir eftir fyrsta hring á BellSouth Classic á -5 undir pari. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Retief Goosen, er í öðru sæti einu höggi frá DiMarco.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hérna sést Love með Players bikarinn. Hann hefur ríka ástæðu til að brosa því að hans sögn og var lokahringurinn besti hringur hans á ferlinum. Það var slæmt veður, mjög hvasst, en samt kom hann inn á 64. Fred Couples sem lék með Love sagði að hann hefði aldrei orðið vitni að jafn góðri spilamennsku. Nú hefur Love unnið 16 mót á ferlinum og flestir segja að hann eigi nóg eftir.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Rétt í þessu var Davis Love III að tryggja sér sigur á The Players Championship með glæsilegum lokahring (8 höggum undir pari). Hann endaði -17 undir pari og vann með 6 höggum. Þetta er í annað sinn sem Love vinnur þetta mót sem er talið 5. stærsta mótið á hverju ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta eru nýju King Cobra SS-i járnin sem taka við af SS járnunum frá því í fyrra. Þessi sett henta mið- og háforgjafarkylfingum og fást fyrir karla, konur og öldunga. Frekari upplýsingar á www.cobragolf.com

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Kappinn heitir Davis Love III og er Titleist spilari. Hann er þekktur fyrir að vera mjög stöðugur spilari og á mörg góð ár að baki. Hann hefur sigrað eitt mót í ár á US PGA Tour.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hérna er einn af mínum uppáhalds kylfingum. Hann hefur ekki náð sér á strik í sumar en ég vona að hann komi sterkur inn.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hérna er aðeins fallegri mynd af John Daly heldur en passamyndin sem var birt af honum um daginn :) Maðurinn er snillingur, mæli með að fólk kíki hingað til að sjá nokkur drive frá honum: www.pinnaclegolf.com

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Flott mynd af Greg Norman að hamra upphafshögg.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta eru nýju PING i3+ járnin sem koma í stað i3. Fást með tveimur mismunandi hausum, i3+ og i3+ Blade. Helsta breytingin er nýtt léttara skaft og stærra stykki aftan á kylfunni sem stækkar sweat spottið.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er ltd. edition af samskonar Titleist Scotty Cameron pútter (Pro Platinum Newport 2) og Tiger Woods vann US Open 2002 með. Hægt er að versla hann á eBay (http://cgi.ebay.com/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=2712747219&category=18973) en hann kostar sitt :) Tiger notar ennþá sama pútter. Ernie Els notar sama lag af haus en Studio Stainless í stað Pro Platinum.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hér er Ernie Els að taka við Johnnie Walker bikarnum sem hann vann fyrr í dag. Ernie setti nýtt met á 72 holum þegar að hann lék á -29 undir pari. Ernie setti sama met á US PGA fyrr á árinu þegar hann vann mót á -32 undir pari. Big Easy er sjóðheitur þessa dagana! Hann hefur unnið 5 mót á árinu og aðeins keppt í 6 mótum. Í eina mótinu sem hann vann ekki endaði hann í öðru sæti.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er Ernie Els eða “Easy” eins og hann er kallaður. Á myndinni er hann að taka við British Open bikarnum. Easy er núna að keppa á Johnnie Walker mótinu á Evrópsku mótaröðinni og leiðir með 9 höggum eftir 54 holur (er samtals á -23 sem er nýtt met). Þegar Els vinnur mótið þá verður það hans 5. sigur í ár! Ernie Els notaði Taylor Made græjur í fyrra en skipti yfir í Titleist í ár. Hann notar 690MB settið, nýjan driver sem heitir 983, Scotty Cameron pútter og nýjan ProV1x bolta sem kemur á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok