Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Gömlu nestisboxin ... (8 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hver man ekki eftir litlu töskunum sem maður notaði gjarnan sem nestisbox eða dótageymslu þegar maður var lítill? Ég er ekki að tala um svona ál drasl, heldur úr pappa. Man einhver eftir þessu? Viti hvar maður gæti fengið svona eða dettur ykkur einhver sniðug leitarorð í hug, til að nota á ebay eða amazon? Kveðja og kærar þakkir. ;)

The grappling blueprint (7 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
http://www.thegrapplingblueprint.com/ Hafiði eitthvað heyrt um þetta? Einhver maður sem segir að hann hafi náð bláa beltinu í BJJ, að mér skilst, á mánuði og svarta beltinu á 3 og hálfu ári, og hann vill ólmur sýna okkur hvernig. Ég ákvað að skrá spam e-mail addressuna mína í þetta, getur ekki skaðað mikið ef þetta er bara kjaftæði. En allavega, einhver sem hefur tékkað á þessu?

Vandamál með IcyBox harðadiskahýsingu (16 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég ákvað að splæsa í IcyBox hýsingu og nýjan harðan disk um daginn. Þegar ég sting honum í samband (búinn að tengja allt vel og örugglega) tekur tölvan mín eftir því að hann hafi verði tengdur, og eftir smá stund segir að hún hafi sett upp driver fyrir hann (windows XP pro) og allt það, en þegar ég opna my computer sé ég hann ekki. Ég held að málið sé það að ég sé bara með USB1 á meðan IcyBox er hannað fyrir USB2. Ég hefði samt haldið að það ætti að virka, en á minni hraða. Er einhver hérna...

"Bad boy" syndromið hjá stelpum (15 álit)

í Rómantík fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Í nýlegri grein á /kynlif er verið að tala um þessa tilhneigingu hjá stelpum til að laðast að strákum sem eru “bad boys”, en mig langar til að velta því frekar fyrir mér hvort þetta sé ekki aðallega sjálfstraustið sem þeim finnst aðlaðandi. Þó vil ég nú taka það fram að “vondir strákar” eru ekki endilega með mikið sjálfstraust, en þeir láta gjarnan líta út fyrir það með því að hafa sig mikið frammi, láta taka eftir sér og jafnvel rífa kjaft við foreldra, kennara ofl. Þetta var bara smá...

Bætur fyrir nauðganir (10 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Fer dómarinn kannski eftir staðlaðri töflu eða? Einn maður nauðgar: 500.000 kr. Tveir menn: 800.000 Þrír: 1.100.000 Fá þeir kannski hópafslátt? Hvað fæ ég fyrir 200.000? Fæ ég að berja einhverja stelpu smá, og kannski cock-slappa hana, eða þarf ég að fá tvo aðra í lið með mér til að fá hópafsláttinn? Það eru allir komnir með nóg af þessum fáránlegu dómum í kynferðisbrotamálum. Þegar sönnungargögnin eru ótvíræð (þau eru það samt ekki alltaf) er það hreinlega skylda dómstóla að sjá til þess að...

San Shou (16 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Vitið þið til þess að einhver sé að kenna San Shou hérna á Íslandi? Eða hefur einhver yfirhöfuð heyrt um þessa íþrótt áður? http://en.wikipedia.org/wiki/San_Shou

Djöfull er ég ógeðslega kúl (71 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já mig langaði bara til að segja ykkur hvað ég er ógeðslega nettur. 1. Ég er með sítt hár 2. Ég hata hnakka 3. Ég geng í leðurjakka 4. Ég á leðurbuxur 5. Ég kann á gítar 6. Ég hlusta á ógeðslega harða tónlist 7. Ég er svona tíu sinnum nettari en þið öll til samans. 8. Ég hlusta samt líka á allskonar öðruvísi tónlist en rokk, ég er nefnilega svo hrikalega víðsýnn 9. Ég er orðinn nett þreyttur á þessu bölvaða rugli þar sem fólk er að væla yfir því hvað aðrir eru miklir plebbar að hlusta á...

"Feik" karakterar í fjölmiðlum (27 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hvað er þetta með að láta tilbúnar persónur fara í taugarnar á sér? Á tímabili komu 20 korkar á dag um hvað Sylvía Nótt væri óþolandi, en núna eru allir búnir að gleyma henni og farnir að væla yfir plebbanum sem kallar sig “Gilzenegger”. Hvað er að? Fattiði ekki að þetta eru bara tilbúnar persónur sem eru leiknar af manneskjum sem eru bara eins og ég og þú?

Rúbríks kubbur (1 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Pælingin er semssagt svona: Ef þú ert með auðan rúbríkskubb (semsagt allir fletir auðir) geturðu raðað litunum þannig á hann að það sé ómögulegt að gera hann ‘fullkominn’? (Gefið að maður noti bara 6 liti, jafn marga hliðum kubbsins) Ég held að það sé ekki hægt. Þú getur snúið hverjum hluta kubbsins um 3 ása, og fengið allar mögulegar litasamsetningar á hvern flöt, og þarafleiðandi er hægt að gera hann ‘fullkominn’ úr hvaða ástandi sem er. (Ég ætla ekki að tjá mig um hversu auðvelt það er …)...

Um könnun: Eru vísindi og trú ósamrýmanleg? (9 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hefur enginn neitt um málið að segja? Annars vil ég taka það fram að ég hef aldrei heyrt orðið “ósamrýmanlegt” áður. :P

Damascus stál, hnífar. (14 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Hefur einhver séð hífa úr damascus stáli hérna á Íslandi? Blaðið á þeim lítur svona út.

Kaffi (16 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Jæja, ég hef þetta bara stutt og án allra málalenginga. Stundum er kaffi gott. Stundum er kaffi vont. Hvað er það sem gerist þegar það er verið að hella upp á það, sem gerir það vont? Veit þetta einhver?

Varandi "málfrelsi" (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég hlæ alltaf jafn mikið þegar ég sé fólk sem er með ljótt orðbragð um annað fólk og gjarnan minnihlutahópa, og segist mega það í skjóli meints málfrelsis. Gerið þið ykkur ekki grein fyrir því hvað felst í merkingu orðsins “Frelsi”? Að vera frjáls er ekki að geta gert það sem manni sýnist óháð öllu öðru. Þó að það sé málfrelsi í landinu “má” ég ekki lýsa því yfir að hinir og þessir séu algjörir vanvitar, fífl og heimskingar, á sama hátt og þó að það sé “hreyfifrelsi” get ég ekki notað það...

Könnun um lyktarleysi (1 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Spurt er “Er til eitthvað sem er lyktarlaust?” Mig langaði til að ræða þetta aðeins :) Hvað er höfundur að meina? Ég skil þetta þannig að hann sé að spyrja hvort það sé eitthvað sem við finnum ekki lykt af. Tökum t.d. prótein. Þau eru það stór (og oftar en ekki greinótt) að þau eru lítið að sveima um loftið sem við öndum að okkur. Eru þau ekki lyktarlaus? Hefur einhver eitthvað um þetta að segja?

Vandamál með Floyd Rose (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Núna vantar mig smá hjálp með Floyd Rose, eða öllu heldur læsinguna sem er efst á hálsinum. Vandinn er sá að svo virðist sem læsingin nái ekki taki á grennstu strengjunum með þeim afleiðingum að þeir halda stillingunni mjög illa ef maður er eitthvað að flippa með stönginni. Einhver hérna sem hefur notað Floyd Rose í einhvern tíma eða hefur góða hugmynd um hvernig þetta skuli lagað?

Varðandi Megadeth tónleikana ... (36 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég er sveitti, síðhærði gaurinn sem var að slamma eins og brjálæðingur. Sá einhver mig?

Könnun - "Í hvernig umbúðum [...]" (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Það vantar 1/3 L. Annars eru 1/4 L frekar sjaldgæfar. Svo vantar líka 1 L gler flöskur. :) Takk fyrir mig. *nag nag nag*

Líf103 (5 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jæja .. hvernig gekk ykkur svo í Líffræði 103 prófinu?

Útfærsla á edit-takka - Vona að Reykdal lesi þetta :) (26 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Þar sem mér sýnist flestir sem eru að krefjast edit-takka vera vanhæfir um að koma með annað en steingeldar hugmyndir sem þeir skilja ekki einusinni sjálfir, ákvað ég að stinga uppá útfærslu sem gengi kannski betur. (Móðgunin er skrifuð í gríni, ekki taka þessu svona illa …) Þar sem það að geta breytt kork/svari er alveg útí hött og til þess eins fallið að valda veseni í umræðum, datt mér í hug að það væri sniðugra að geta bara bætt við textann, þó þannig að viðbótin væri alveg sér merkt....

Lélegur fókus og óskýrar myndir ... :( (13 álit)

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég næ ekki þessum hrikalega skörpu myndum og maður sér oft hjá ykkur pro-ljósmyndurum. Ég er með EOS-350D, hef prófað að hafa ISO speed í hæsta (1600) og lægsta (100), auto-focus, breyta sharpness í parameters stillingum .. og eiginlega bara allt sem mér dettur í hug .. Hvað er eiginlega trikkið? (eða er ég kannski að berjast við vindmyllur?) ;) Kv. Duff

Hugaðasti hatarinn ... (44 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hvað er eiginlega að ykkur? Hvað fáiði útúr því að tala um það hérna, á forum á netinu, hvað þið hatið aðra meðlimi þess? Í gvöðanna bænum, fæstir hugarar þekkjast meiraðsegja innbyrðis! þið eruð að dæma fólk útfrá því hvernig það flippar á netinu! Og eins og Sirja sagði í korkinum hérna á undan:“farið að gera eitthvað betra við tíma ykkar eins og að læra stafsetningu.” …. !

Skattafsláttur námsmanna? (12 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Þannig er mál með vexti að ég hef ekkert unnið í ár, bara verið í skólanum, en núna er að koma sumar og þá fer maður að sjálfsögðu að vinna. Ég var semsagt að spá hvort maður hefði einhversskonar uppsafnaðann persónuafslátt sem ég gæti þá notað til að borga minni skatt en ég myndi annars gera … Ég er búinn að leita talsvert að þessu á www.rsk.is en ég finn ekki neitt. Einhver hérna sem hefur farið í gegnum þetta sjálf/ur og gæti kannski útskýrt þetta fyrir mér (og fleirum) í stuttu máli?

Mig vantar zoom-linsu :) (2 álit)

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Málið er semsagt það að það fer svolítið í taugarnar á mér að linsan á vélinni minni (Canon EOS-350D) er eiginlega öfugt-zoom, hvað sem það heitir, og í mestu stækkuninni sér maður bara jafn stórt og maður sér venjulega. Ég hafði semsagt hugsað mér að hérna gæti leynst einhver sem ætti ágæta linsu sem ég gæti fengið fyrir lítið .. ekki verra ef hún passar á vélina :) Skoða allt .. eða svona .. flest. :P

Ólögleg fíkniefni (14 álit)

í Djammið fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Hafið þið einhverja reynslu af óhefðbundnum fíkniefnum? Þá er ég ekki að tala um kannabisefni, spítt eða epillu, heldur LSD, meskalín, psilocybin, ketamín osfrv. Bara .. reyna að starta smá umræðu :)

Smá misskilningur... (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Langar til að leiðrétta smá misskilning … Ákveðin tíska hefur verið að ryðja sér til rúms, og vilja margir kalla þetta “goth” eða “gothic”. Þetta viðurnefni er alrangt og útí hött. Þeir sem eru almennt kallaðir “goth” eru í rauninni mansonistar eða beinlínis aumingjar. Þetta er gothic. Ekkert annað. Hættið þessu kjaftæði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok