Já mig langaði bara til að segja ykkur hvað ég er ógeðslega nettur.

1. Ég er með sítt hár
2. Ég hata hnakka
3. Ég geng í leðurjakka
4. Ég á leðurbuxur
5. Ég kann á gítar
6. Ég hlusta á ógeðslega harða tónlist
7. Ég er svona tíu sinnum nettari en þið öll til samans.
8. Ég hlusta samt líka á allskonar öðruvísi tónlist en rokk, ég er nefnilega svo hrikalega víðsýnn
9. Ég er orðinn nett þreyttur á þessu bölvaða rugli þar sem fólk er að væla yfir því hvað aðrir eru miklir plebbar að hlusta á lélega tónlist
10. Ég er orðinn nett þreyttur á því hvað fólk heldur að það sé töff að koma á huga og segjast vera ógeðslega töff, teljandi upp hvað það hlustar á mörg mismunandi bönd og hvað það sé ekki með neina fordóma og hlusti á allar skoðanir og haldi að allar skoðanir séu jafn réttar.

Slakið aðeins á, það er öllum sama á hvað þið hlustið og hvað þið haldið.
Þetta er ekki spjall vefur.