Núna vantar mig smá hjálp með Floyd Rose, eða öllu heldur læsinguna sem er efst á hálsinum.
Vandinn er sá að svo virðist sem læsingin nái ekki taki á grennstu strengjunum með þeim afleiðingum að þeir halda stillingunni mjög illa ef maður er eitthvað að flippa með stönginni.

Einhver hérna sem hefur notað Floyd Rose í einhvern tíma eða hefur góða hugmynd um hvernig þetta skuli lagað?