Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Óöld á Íslandi? (20 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 8 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1282822;rss=1 Um helgina (27.-29. júlí) voru TÓLF líkamsárásir tilkynntar, auk þess sem maður var SKOTINN með riffli. Hve margar líkamsárásir og önnur ofbeldisverk ætli hafi ekki verið tilkynnt? Hvað er að gerast? Finnst okkur þetta í lagi? Er Ísland að verða svo mikið menningarlegt útsæði bandaríkjanna að okkur finnst sjálfsagt að lemja næsta mann ef hann fer eitthvað í taugarnar á manni, já eða SKJÓTA hann einfaldlega þegar hann byrjar með...

Pentagram á mynt (6 álit)

í Dulspeki fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Mynd af pening sem ég á. Veit ekki frá hvaða landi hann er, en það er greinilega eitthvað land sem notar/notaði pentagram aftan á peningana sína.

Hvað einkennir góðar bækur? (16 álit)

í Bækur fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Titillinn segir flest. En hvað er það sem veldur því þegar þið eruð að lesa bók, að þið fattið alltíeinu “vá, þetta er góð bók.”? Segi það fyrir sjálfann mig, að mér finnst djúpir karakterar og sannfærandi samtöl hafa einna mest áhrif. Þar held ég að Hemingway sé meistarinn.

Rigningardagar - Ónýtur dagur (4 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Það er ótrúlegt hvað smá rigning getur skemmt mikið fyrir manni. :P Annars er líka alveg merkilegt hvað allt verður grænt eftir smá rigningu (eins og sést á flickrinu mínu). Nenni ekki að skrifa neinar spes upplýsingar, þar sem það er ekki eins og gæjurnar skipti það miklu máli þegar vinnslan er svona :þ og HaukuRe8, hraðakstur er hættulegur. Ekki keyra svona hratt niður Ártúnsbrekkuna ;) Gamalt fólk er ennþá lifandi útafþví að það keyrir hægt.

Munurinn (2 álit)

í Vísindi fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Munurinn á venjulegu fólki og þeim sem eru fæddir vísindamenn :P

Fiskibollur (7 álit)

í Matargerð fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Fólk hefur rosalega mismunandi álit á fiskibollum. Persónulega finnst mér fiskibollurnar hennar ömmu alveg herramannsmatur, með steiktum lauk og brúnni sósu. Svo ekki sé minnst á kósý spjall við þau gömlu hjónin á meðan maður treður í sig :P

Týpískt portrait (8 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Var aðeins að leika mér … ég held að þetta sé nokkuð klassískt portrait. Takið eftir því hvar vinstra augað (hægramegin á myndinni) á honum er, og hvernig það er nokkurnvegin í skurðpunkti þriðjungalínanna, og er þannig nokkurnvegin aðalatriði í myndinni. Lýsingin er sólarljós í gegnum glugga, og var eiginlega bara heppni. EOS 350d og helvítis 18-55 mm kit linsan … er ekki ennþá kominn með betri linsu í því sviði, en ég fæ vonandi 24-70 mm f/2.8 L eftir svona 2 vikur \o/ Húrra.

Hugleiðing um hertari reglur á innsendum myndum (74 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Mér hefur fundist það liggja svolítið í loftinu að menn séu óánægðir með magn þeirra mynda sem eru að þeirra mati óáhugaverðar. Einnig, miðað við magn þeirra mynda sem virðist streyma hérna inn, mætti ætla að hægt væri að herða aðeins á kröfunum um gæði þeirra. Hvernig þætti mönnum ef við myndum bara koma okkur saman um einhverjar svona ‘vinnureglur’ sem við myndum reyna að fara eftir, og reyna síðan að sannfæra stjórnendur (og vona að þeir leggi eitthvað til málanna) um ágæti þeirra… ? T.d....

Yoga er the ultimate bardagalist (4 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 16 árum, 12 mánuðum
http://www.vidmax.com/index.php/videos/view/1173 Hérna sjáum við ljóslifandi dæmi þess að yoga er ofur-þróuð bardagalist sem á sér enga jafnoka. Í myndabandinu sjáum við tvo unga kung fu meistara sem standast yoga-iðkandanum ekki snúning. Þarf að segja eitthvað meira?

Matti og Egill í Munnriði (19 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 12 mánuðum
Matti og Egill í Munnriði eldhressir í Norðurkjallara MH. Full af þessu hérna: http://flickr.com/groups/icelandicmetal/pool/

Fullt af tónleikamyndum! (6 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 12 mánuðum
http://flickr.com/groups/icelandicmetal/pool/ Vildi bara benda ykkur á það að grúbban okkar stækkar ört! Vil líka benda á að allir sem gætu viljað senda inn myndir þarna eru auðvitað miklu meira en velkomnir, og ég hvet ykkur eindregið til að gera það, og síðast en ekki síst að benda öðrum á þetta svo að allir fái að njóta myndanna. ;-) Er ekki einhver til í að spamma þessu líka á töfluna fyrir mig?

Myndir af tónleikum... !!! (8 álit)

í Metall fyrir 17 árum
Eru menn ekki orðnir þreyttir á því að sjá svona 5-10 ljósmyndara á tónleikum, en aldrei neinar myndir þaðan? Ég var að búa til grúbbu á flickr fyrir myndir í sambandi við metal og ‘þungarokk’ á íslandi, og mér þætti gaman ef við gætum hjálpast að við að ekki bara senda inn myndir þangað og commenta, heldur að dreifa þessu þannig að allir sem vilja fái að njóta myndanna með okkur… Hvernig líst ykkur á? Eruði með mér í þessu?

Diabolus að massa þetta! (16 álit)

í Metall fyrir 17 árum
Diabolus að hita upp fyrir Zero Hour í TÞM. Óskýr mynd, ég veit. Bölvað vesen að taka myndir við svona aðstæður :P

Sólarlag (24 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum
Stundum er ég bara svo glaður yfir því að hafa ekki skilið myndavélina eftir heima … Stærri útgáfa á flickrinu mínu - eos350d, 18-55mm kit linsan 1/1600s - f/5.6, iso 200 Kópavogur, 5. apríl

Skemmtilegur leikur :D (52 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum
Þetta er einn af þessum áhugaverðu leikjum sem hægt er að leika sér í t.d. í bíl þegar maður er orðinn þreyttur á “Hver er maðurinn?” eða Lotukerfisleiknum. Pælingin er að þáttakendur ímynda sér að þeir séu staddir í stórmarkaði og þeir eiga að finna sér tvo hluti (semsagt tvær vörur) hvers samsetning væri mest sjokkerandi og minnisstæð fyrir manneskjuna á kassanum. Síðan má gera þetta erfiðara (og fjölbreyttara!) með því að breyta aðeins aðstæðunum, t.d. segjum að við séum í...

Mikilvægi nákvæms orðalags (17 álit)

í Heimspeki fyrir 17 árum
Mér sýnist höfundur skoðanakannanirnar sem er núna ekki gera sér grein fyrir mikilvægi nákvæms orðalags. Til að svara spurningu hans, þá trúi ég á líf eftir dauðann. Hinsvegar, eðli málsins samkvæmt, þá á ég ekki eftir að vera lifandi eftir minn dauða, heldur á vonandi fullt af fólki eftir að lifa minn dauða af. Hvað finnst ykkur? Er nákvæmt orðalag ónauðsynlegt?

Til í smá pælingar? (5 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum
Er ekki kominn tími á smá umræðu? Eitthvað svona þannig að við getum öll lært og jafnvel kennt hvoru öðru eitthvað sniðugt? Mig langar til að fólk velti aðeins fyrir sér hvað því finnst einkenna góða mynd, og þá semsagt hvort það þurfi eitthvað meira til en góða myndavél og fallegt myndefni. Eða þarf kannski ekki einusinni góða myndavél eða fallegt myndefni? Sjálfum finnst mér ég nefnilega svo oft sjá myndir (ekki bara hér) sem eru með ansi skemmtilegu myndefni, en eru bara ekkert...

Á að koma efnafræði eða náttúrufræðiáhugamál ? (13 álit)

í Vísindi fyrir 17 árum
Þarna sjáum við enn og aftur hvað hörnun tungumálsins hefur í för með sér. Sér fólk í alvörunni ekki muninn á eftirfarandi setningum: “Á að koma efnafræði eða náttúrufræðiáhugamál?” eða “Ætti að koma efnafræði eða náttúrufræðiáhugamál?” ???? Þessi könnun er alveg óttalega vitlaus, nema þá að höfundur hennar hafi verið að athuga hve vel fólk fylgist með því sem er að gerast. (En það efast ég um)

Frænka mín (6 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 1 mánuði
Finnst þetta svolítið skemmtilegur svipur á henni. Það er svo gaman að taka andlitsmyndir af börnum, þau eru ekki búin að þróa með sér svona “myndavélasvipi”, þannig að maður fær bara einlægnina og jafnvel forvitni. Kannski full mikið skerpt? EOS-350d, 18-55 mm kit linsan Vinnslan er eitthvað levels, brightness/contrast, photofilter, smart sharpen (ps cs2), saturation… eða eitthvað.

"Tæknilega séð!" (32 álit)

í Heimspeki fyrir 17 árum, 1 mánuði
Alveg er ég orðinn þreyttur á því að fólk haldi einhverri vitleysu fram og rökstyðji það með því að segja “jú, tæknilega séð!” Hvað er fólk eiginlega að meina með þessu? Er hvað sem er, hvernig sem er “tæknilega séð”? Er ég í alvörunni sá eini sem er orðinn þreyttur á þessu, eða bara “tæknilega séð”? Eða getur kannski einhver útskýrt hvað þetta á að þýða?

Tónlistin (9 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 1 mánuði
Fyrst var ég hræddur. Vissi ekki hvaða tilfinningar þetta voru sem bærðust innra með mér, virtust fylgja þessum undarlegu en undursamlegu hljóðum sem á einhvern undarlegan hátt bárust mér til eyrna. Á einhvern undarlegan hátt kveiktu þau tilfinningar, tilfinningar sem, eftir mikla íhugun, ég tel mig hafa fundið síðast þegar ég var barn, síðast þegar ég upplifði jólin sem barn, síðast þegar ég átti afmæli sem barn. Síðast þegar ég var barn og upplifði heiminn sem barn, á þenna yndislega,...

Radíóamatörar (35 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 1 mánuði
Húrra! Ég er orðinn radíóamatör, með svokallað G leyfi, hæsta leyfið. Má eiga og nota allt að 1000 watta útvarpssendi og nota hvað sem ég vil sem loftnet (girðing, anyone?). Hvað með ykkur? Eruði jafn awesome og ég?

Tvískiptar kannanir? (12 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 1 mánuði
Mér hefur sýnst það vera að verða æ meira móðins að skeyta “kk” og “kvk” í endann á valkostum ýmissa kannana, þar sem menn eru að reyna að fá marktæka úttekt á mismunandi svarhlutöllum hvors kynsins fyrir sig. Þetta þykir mér afar ófagurt og er þetta hreint ekki til að auka læsileika eða marktæki fyrrgreindra kannana (enda er kynjahlutfallið hérna ekki jafnt, og því enganvegin að marka þá prósentutölu sem út kemur, nema eftir viðeigandi útreikninga (sem ég skal þó glaður útskýra nánar, um...

Ódýrt, notað selló óskast hálfpartinn. (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 1 mánuði
Hvar myndi maður fá notað selló ódýrt? þarf alls ekki að vera einhver klassa gripur … Eða eru selló kannski ekkert framleidd í svona “lægri” gæðastöðlum? Dauðlangar í svoleiðis.

Ást... ? (18 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ég fann loksins mynd sem mér finnst lýsa þessu ágætlega :o
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok