Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Massi
Massi Notandi frá fornöld 376 stig

Java með StarOffice (6 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Java-based development kit fyrir StarOffice um mitt næsta ár, kemur sem mótvægi við VB macros og scriptur hjá M$ Office, er reyndar meira hugsað fyrir forritara en venjulegan notanda (sjá http://zdnet.com.com/2100-1104-975529.html). Er komið alvarlegt mótvægi við Micro$oft Office pakkann? Mikið af stofnunum hér á landi hefur hafið notkun á StarOffice og fleiri eiga sennilega eftir að bætast í þann hóp þegar fréttir af 90% sparnaði við þennan kostnaðarlið berast milli manna. Hvað segja...

Allir í skjól (3 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Lífstíðarfangelsi í bandaríkjunum fyrir tölvuþrjóta. Best að hætta öllu fikti, músin er talin jafn hættuleg skammbyssunni og verður jafnvel bönnuð. Pifffff Djöfull eru kanar heimskir, sjáiði bara forsetann þeirra :) massi

3 lögmál tölvunarfræði (3 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Var að heyra þetta, hefði átt að vera minnst á þetta í 1. bekk. Þrjú lögmál tölvunarfræði: 1. Breytur breytast ekki. 2. Fastar festast ekki. 3. Forrit breytast á nóttunni. massi

Prentun í skilgreinda bakka (1 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Best að prófa viðbrögðin korkinum… Ég hef barist við það í smá tíma að fá að ráða úr hvaða bakka blöðin mín prentast, án þess að þurfa að velja það í prentaravalmyndinni (frá windows). Málið er að Cannon prentari sem er á vinnustaðnum skilgreinir sína bakka sem ‘Top’, ‘Middle’, ‘Bottom’ o.s.frv. og á honum get ég valið hvar prentast. Allir aðrir prentarar sem ég vinn með eru HP og þeir skilgreina bakkana sem ‘Tray 1’, ‘Tray 2’ o.s.frv. og í þá bakka get ég alls ekki valið að prenta. Til að...

TomCat/Soap - charset (1 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Crap, klukkan orðin alltof margt á föstudegi og ég á enn eftir að finna þetta út. Ef einhver kannast við það að íslenskir stafir koma í rugli þegar ég hef samskipti við Tomcat Application Server via SOAP, client forritaður í java, bæði System.out og FileWriter koma rugluð út. Þetta er vandinn, ef einhver kann lausnina gæti ég þegið greiðann, ekki í neinu skapi til að eyða sumarfríinu í að grufla þetta upp. massi.

Java dialog font (0 álit)

í Forritun fyrir 22 árum
Eitt vandamál, er að forrita application í JBuilder og þegar þau eru keyrð á annarri vél en minni verður sjálfgefni fonturinn, Dialog 12p alveg til vandræða, birtir feitan punkt alls staðar sem á að vera bil. Kannast einhver við þetta eða verð ég að skila EJS vélinni og fá nýja hjá OK? massi

JClass DesktopViews (4 álit)

í Forritun fyrir 22 árum
Sitraka software var að boða nýja útgáfu af JClass sem kemur út í júní. Komið nýtt nafn á JClass Enterprise Suite, JClass Desktop Views heitir það hér með. Er einhver annar að nota þetta snilldar tól á Íslandi eða er ég einn á báti? massi.

MouseWheel support for JBuilder (0 álit)

í Forritun fyrir 22 árum, 1 mánuði
Nákvæmlega það sem mig vantaði, fann það á http://codecentral.borland.com/codecentral/ccweb.exe/listing?id=15687 Einfalt í uppsetningu og enginn pirringur framar. massi

JBuilder - layout (2 álit)

í Forritun fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þessa dagana er ég að prófa mig áfram með JBuilder og gengur ágætlega. Eitt er þó að trufla og það er að læra á layoutin, þ.e. að staðsetja hluti applicationi sem ég er að búa til. Ef einhver veit um góða tutoriala á netinu eða einhverjar góðar lausnir á vandanum væri gott að fá einhverjar upplýsingar, eins og er nota ég aðallega null layout sem leyfir mér að færa hluti að vild en stærð og staðsetning hlutanna er föst og bregst ekki við breytingum á glugga í runtime. Þar sem ég er viss um að...

Application Server (1 álit)

í Forritun fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Sælir Hugarar Fyrirtækið sem ég vinn hjá ætlar að fara að nota Application Server en vill helst nota product sem það veit að aðrir á Íslandi eru að nota og sem virkar. Ég þekki ekki mikið til þessarra servera og er að spá í hvort mörg fyrirtæki séu að nota þá, hvaða tegund og hvernig þetta hefur reynst. Einnig væri gott ef einhver sem veit meira en ég um þessa hluti gæti skrifað grein og miðlað af sinni þekkingu um þessa hluti. KK massi

Authentication - Sessions (3 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Veit einhver um gott og einfalt dæmi sem sýnir hvernig best er að halda utanum innskráða notendur? Ég er að apa upp eftir einhverjum þýskum gúrú og finnst margt sem hann er að gera vera óþarflega flókið, þar á meðal þetta. Ef einhver veit um góðar leiðbeiningar eða ef þetta er það einfalt að hægt er að útskýra í stuttu máli gæti ég þegið góð ráð. massi

Driver fyrir windows2000 (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Var að uppfæra í W2k og hljóðkortið mitt virkar ekki, þ.e. new hardware wizardinn segist ekki þekkja neinn driver, sem er reyndar rétt, driverinn er bara ekki til fyrir W2k. Ég var að vona að þar sem stýrikerfið er byggt á NT technology væri séns að driverinn virkaði en það er bara ekki hægt að koma uppsetningunni í gang á NT driverinn. Þekkir einhver tips or tricks til að fá þetta til að virka, mér liði mun betur ef ég gæti bara reynt að keyra á NT drivernum, jafnvel þótt ég myndi steikja...

Innihaldslausar síður (6 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hafið þið einhvertíman lent í því að vera beðnir um að gera fyrirtækjasíðu, fyrirtækið vill fá stóra og flotta síðu þar sem hægt er að gera helling af flottum hlutum, en málið er að það er ekkert hægt að birta um fyrirtækið? Það eru færri en 20 starfsmenn, lítil hreyfing á viðskiptavinum, aldrei neitt fréttnæmt að gerast, afskaplega fátt til sölu og forsvarsmenn hafa enga hugmynd um hvernig þeir vilja hafa síðuna eða hverjir þessir flottu hlutir eiga að vera. Hvað á maður eiginlega að gera...

Breyta skjali með .bat skrá (4 álit)

í Forritun fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þarf að geta opnað skrá, athuga hvort ákveðinn strengur sé til og ef ekki þarf ég að bæta honum inn og vista. Ekki svo oft sem DOS-arar fá að láta ljós sitt skína og Bill Gates svara ekki póstinum mínum. Ef einhver veit um góða DOS-bók á netinu er alltaf gott að geta flett svona hlutum upp, endilega látiði vita. Massi

Maski fyrir dagsetningar í MFC (0 álit)

í Forritun fyrir 23 árum, 1 mánuði
Böggur sem ég er að laga lýsir sér svona: Um er að ræða maska fyrir dagsetningar, “##” og “##.##.##”.
Þeir eiga að virka þ.a. í svæðin er bara hægt að slá inn númer, það sem klikkar er að 0 er ekki tala fyrr en búið er að slá inn einhvern annan tölustaf á undan.
Þetta er alveg vonlaust þegar slá á inn dagsetningar því ef slegið er inn 1. jan 2001 sem 01012001 er fyrsta núllið ekki tekið gilt og dagsetningin verður 10.12.2000 þegar farið er úr svæðinu.
Þar sem Deja.com er búið...

Þræðir (1 álit)

í Forritun fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Jæja, kominn tími til að skoða hversu vel gengur að fá hjálp á Huga.
Málið er sennilega mjög einfalt og sennilega bara meinloka hjá mér, en ég næ ekki að krafla mig fram úr því.
Ég er að forrita í c++, fyrsta alvöru verkefnið, MFC, Stingray, rouguewave, allur pakkinn.
Meðan ég er að loka forritinu (sem er nokkur frágangur) þarf ég að birta dialogbox, bara með textaskilaboðum. Áður en ég kalla á fall sem lokar forritinu bý ég til nýjan þráð sem opnar dialog-ið. Meðan lokun tekst er...

Crossbrowser JavaScript Menu (3 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Veit einhver um ‘Alvöru’ crossbrowser menu?
Skásta sem ég veit um virkar á NS6 og IE en ekki á Opera og er að finna á Javascript.com.
Veit einhver um eithvað betra?
Massi<BR

Íslenskur server (2 álit)

í Blizzard leikir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Eru nokkrir íslenskir severar uppi? Ég veit ekki um neinn.
Á þessum korki hef ég heyrt að Íslendingar spili ekki SC og það er ekki rétt. Í Tölvunarfræði í HÍ voru um 10 virkir spilarar í fyrra og LAN spilað næstum daglega, og fleiri leynast víða.
Mér finnst SC ekki vera síðri skemmtun en Quake, munurinn er sá að Quakarar fara á Skjalfta og hitta sína félaga þar og oftast þekkir maður flesta á servernum.
Bnet er fínt en of mikið um hakkara og svindl og litlar sem engar líkur á að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok