Böggur sem ég er að laga lýsir sér svona:
Um er að ræða maska fyrir dagsetningar, “##” og “##.##.##”.<br>
Þeir eiga að virka þ.a. í svæðin er bara hægt að slá inn númer, það sem klikkar er að 0 er ekki tala fyrr en búið er að slá inn einhvern annan tölustaf á undan. <br>
Þetta er alveg vonlaust þegar slá á inn dagsetningar því ef slegið er inn 1. jan 2001 sem 01012001 er fyrsta núllið ekki tekið gilt og dagsetningin verður 10.12.2000 þegar farið er úr svæðinu.<p>
Þar sem Deja.com er búið spil treysti ég á að Hugi.is komi í staðinn, ef ekki væri ég til í að fá ábendingar á góðar síður þar sem leit er jafn góð og powerSearch var á Deja.<p>
Massi