Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
LulliB
LulliB Notandi frá fornöld 43 ára karlmaður
686 stig
Ferð Fyrirgefningar (2 álit)
í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Það er ljúft að anda og ég heyri loksins í mér fínt að geta faðmað og sofna hjá þér Þú ert vatnið og ég er báturinn þú ert allstaðar og flýtur mig áfram Síðan fýkur í þig og þú reiðist fyrirgefðu mér áður en þú sekkur mér Ég er týndur ég er brak sem skolast á fjöruna en ég elska þig samt
Tíminn og ég (0 álit)
í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þá er kominn tími til að bregða fæti og sýna sig ég er búinn að byrgja mig inni ekki einu sinni fjöllinn kannast við mig þegar ég stend upp úr jörðu góðir hálsar og góðar hendur takið upp hanskana og lyftið mig upp ég vil fá finna fyrir hlýju sólarinnar það er kannski kominn Tími að hann fari?
Heitar umræður! (8 álit)
í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jæja hver verður númer eitt í heitum umræðum næst, ég spái að það verði greinin “Stúlkur undir lögaldri sýndu undirföt…” og ég spái henni svona um 150 pósta, hvað segið þið?
- - - Of course, such an owerweening purpose did not develop all at once, There mere stories were the thing. They arose in my mind as “given” things, and as they came, separately, so too the links grew. - J.R.R. Tolkien *** LulliB
Win XP SP2 (2 álit)
í Windows fyrir 20 árum, 3 mánuðum
- - - Of course, such an owerweening purpose did not develop all at once, There mere stories were the thing. They arose in my mind as ”given" things, and as they came, separately, so too the links grew. - J.R.R. Tolkien *** LulliB
Keiko is dead (24 álit)
í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Whois is dead? Keiko.. http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1062473
- - - Of course, such an owerweening purpose did not develop all at once, There mere stories were the thing. They arose in my mind as “given” things, and as they came, separately, so too the links grew. - J.R.R. Tolkien *** LulliB
Vangaveltur um ástarsorg (1 álit)
í Rómantík fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Fyrst að rómantíkin hérna virðist vera sambönd og samböndleysi, vandamál í sambandi eða vandamál með sambandleysis (nú fer maður að pæla hvað samband þýðir. :)) Mig langaði að tala um ástarsorg eða sambandslit, mér finnst við eigum að líta á þessi vandamál okkar meira með jákvæðnum hug því þótt það sé erfitt að slíta samband þá er það alltaf eitthver útkoma sem kemur úr því. Já til dæmis þá væri ekki eins mörg lög um ástarsorg eða lög þar sem maður er ástfanginn ef engin ástarsambönd væru...
Boot Vandamál (6 álit)
í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Sæl! Ég er í svolítlu vandamáli, þannig er málin: Ég er með stýrikerfi á harðadisknum og er búinn að skrifa stýrikerfið á diskinn, síðan er ég búinn að setja þetta upp í Nero, þar sem ég set bootsectorinn upp í image file glugganum og geri þetta eins og þetta á að vera en þegar ég ætla boota diskinn þá vill hann ekki boota alla leið, en ég reyndi að boota diskinn á aðra tölvu og þar svínvirkar hann. Ég er með Mitac Minote 8650 og SBW-161 DVD og skrifara, ég get bootað upp alla boot up diska...
Vinsældir! (10 álit)
í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Samkvæmt vinsældum áhugamálum er fólk greinilega að spila CS og horfa á úrklippur meðan það er að ríða og síðan eftir það fer það að drepa þjóðverja í BF og keyrir síðan í burtu á uppáhaldsbílnum sínum. Þetta er töffarasamfélag hérna á huga!
- - - Of course, such an owerweening purpose did not develop all at once, There mere stories were the thing. They arose in my mind as “given” things, and as they came, separately, so too the links grew. - J.R.R. Tolkien *** <a...
Draumur,Tíminn,Tár (1 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Draumur Ég sé þig í draumi, þú ert með blóm í hendinni hárið þitt er lengra en venjulega og kinnar þínar eru rauðar þú brosir og segir eitthvað með kyssuberjarauðu vörunum þínum en ég heyri ekki hvað þú segir því það er þögn Tíminn Tíminn sagði allt ég þurfti ekki að bíða þú þurftir ekki að segja orð Tíminn sagði allt Hann kvaddi mig Tár Það lekur tár niður tilfinningin er svo sterk það sem ég gerði var svo aumt í rúminu ligg ég og skelf heimurinn er ekki til og ég er bara lítið tár sem þorna
Hvar (1 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hvar í loftinu er orðið Orðið sem ég leitaði er ég kvaddi þig Það er eins og það hafi farið og hafið flug sitt suður með fuglunum í takt við vindinn Hvar í alheiminum ert þú? Þú sem faðmaðir mig og þerraðir tárin með hendi þinni, tárin sem runnu eins og fossinn í takt við bergið
Riddari Nætursins (6 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Í loftinu býr drekinn sem spúir ljósið Þar sem myrkrarholurnar flýja undan eldi drekans Bláa ófreskjan öskrar slæmar fréttir og hóstar blóði Á mjúka þægilega hnakkinum situr riddarinn Sem mundar spjótinu að ófreskjunni Fimulegir puttar riddarans sjá um ófreskjuna Og hin eilífa orrusta hefst í kvöld.
Kominn(Farinn) (1 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Fortíðin er í aðalhlutverki Hún leikur guð og fær góða dóma sársaukinn er snákurinn sem bítur mig Fortíðin er verkurinn í hausnum hún er tárin sem leka niður kinnar mínar Hún frystir hjartað mitt kitlar magann minn Eldingar dauðans lýsa herbergi mitt upp Þrumurnar heyrast á eftir Rigningin kemur hlaupandi og skolar blóðið ætli sólin skíni í dag
Ljóðið hans (5 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
í myrkrinu kemur ljósið í rigningunni birtist sólin við vatnið myndast regnboginn maginn á mér rólar sér úti og stekkur eins langt og hann getur þegar ég sé þig. ástin ýtir maganum áfram svo fast ýtir hún, að maginn dettur Heilinn skammar ástina en ástin bendir bara á magann á meðan rigningin fellur á hárið mitt þegar ég sit við sandkassann og moka sand yfir tárin, sem hverfa í sandinum ætli það sé sól á morgun spyr ég skýin skýin hrista bara hausinn húsið bíður mig velkomin ég sofna og býð...
Brottfara ljóð (5 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sællegi Sæfarinn andar djúpt er skiptið um hafið siglir súrefnið góða og loftið svo ljúft Dansar skipið Gyllir Hugur Sæfara hefst á loft er heimahagan hann sér Heimilið sem hann sér svo oft en saknar þegar hann fer ———- Lítið ljóð þegar ég samdi er ég var að fara út á sjó í sumar :)
Komdu og segðu mér litla sögu (0 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sólin hitar upp jöklana og brennur menn En fólkið heldur áfram í sínu lífi Þar sem allt á að vera flott eins og líkamsræktarmenn þau eiga bara að leggjast í sitt hýði Skuggabaldur hlýtur að koma Þegar öll ljós slökkna Og allir eru farnir að sofa Þá kemur hann til láta alla vakna -Viðlag- Komdu og segðu mér litla sögu Hvernig mennirnir fóru að eyðileggja þessa jörðu Segðu mér hvort þeir fóru til vítis Eða hvort þeir fengu sæti á skýjum himnaríkis Myrkrið fer á stjá Til að skreyta jörðina Svo...
Ég þekki þig ekki (0 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég þekki þig ekki en mér þykur samt vænt um þig Draumar mínir snúast um þig ég er umvafinn af ást frá þér Hlýi faðmur þinn hringast um líkama minn og góði ilmur þinn svæfir mig til endaloka Endir heimsins kemur með nýja byrjun og fleiri tækifæri til að vera með þé
Dauður Félagi (2 álit)
í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Sólin málar skýinn með himinum þá myndast hið fullkomna, komið til að vera ég mun einhvern tíman snerta hann til að líða betur ég er nefnilega leiður á þessu atvinnulaus og þunglyndur gengur ekkert að hætta að reykja og kærastan hætti að hringja ég hringdi…. en þá hætti hún að svara Lífið leikur við börnin úti það er hætt að leika sér með mér Lífið hefur skilið mig út undan Ég sit einn við framan sjónvarpið og heyri Dauðan hvísla: komdu að leika Komdu út og við skulum leika Dauðinn er góður...
Sorgin hefur fæðst (3 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum
Sorgin hefur fæðst lítil hún er í fyrstu síðan eins og lifra hún étur sig stóran hún étur mig innan frá ég er tómur Síðan verður hún að púbu og tíminn líður úr púbunni kemur fiðrildi sem flýgur með ást og hamingju ég blómstra allur innan frá ég er glaðu
Hverjir ætla að fá sér Xbox? (0 álit)
í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ekkert svar (2 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Sorgin í fjarska flýgur um bæinn og gerir sér hreiður heima hjá mér Dauðinn svo nálægt ég heyri í honum það þytur í þungum vængjum Biðin eftir heimkomu hans verður eilíf Komdu strax til mín Komdu núna Heimsóknin ætlar aldrei að verða veruleika tónlistin dunar enn og hættir ekki Kannski kemur hann ekki kannski brottlenti hann get ég þá leikið mér með börnunum, sungið sönginn? En yndisleg tilfinning sólin skínur loksins lífið er ekki lengur sorg heldur skemmtilegur leikur Það er bankað á dyr...
Fyrsta lota! (9 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þeir segja að ég get ekki rímað/svalir töffarar sem halda að þeir geti glímað/ Ohh nei ég held þú ættir að lesa mínar rímur/áður en þú dúlbúir þig sem dómari með nokkrar línur/ ég hef rímað síðan ég fór í barnaskóla/hef rímað síðan ég datt inní framhaldskóla/ég hef rímað síðan ég og krissi fórum að róla/ hef rímað síðan Óli fékk hnefahögg í hausinn/hef rímað síðan pabbi varð edrú og skráði sig inní Krossinn/ þið hrópið á mig aulaskáld sem reynir að semja/skáld sem kann ekki að ríma/ætti...
Hún grætur (10 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hún grætur inn í herberginu vonarneistin í augunum skolast út Koddinn drekkur flóðið og hæga tónlistin bergmálar Svo vinamörg og vinsæl samt svo einmanna og leið Engin hér til að faðma engin til að hugga Vonleysið fylgir henni eins og skugginn, sýnir enga miskunn sorgin eltir, og bíður eftir færi þegar hún hættir að gráta Ástin fyrir henni er eins og vatnið fyrir Sahara, finnst ekki nema á góðum stöðum þó hún sé talin fegurð, sér hún ekki það í speglinum sér hún vonleysið í dulargervi Svo...
Sálarferð (9 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Andvöku nótt, þögnin tekur völdin svefnlausar sálir, svífa um göturnar í dimma herberginu dansar ljósið í græjunum augun virðast lifa sjálfstæðu lífi Heilinn gerir uppreisn, flakkar hingað og þangað einmannaleikurinn kemur í heimsókn og fær sér kaffi tíu dropa hann drekkur, flýgur síðan í burtu Andardrátturinn verður djúpur, dregur hægt Meðvitundin sofnar, ljósið hefur verið kveikt sálardansinn duninn, frelsið fagnað í föruneyti meðal sála, ferðin farinn Gleymda ferðin er hafin
Ljóð til Ástarinnar (3 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég veltist í óhamingjunni eins og svín í drullu í útvarpinu eru leikin lög eftir pöntun Sjónvarpið sýnir fréttir fyrir fatlaða á meðan ríkið nauðgar fátæka og öryrkja Leitin að ástinni er eins og leita að Bin Laden Þú veist ekki hvort hún sé dauð eða falin spurningin finnst ekki í alfræðiorðabókinni ástin er ekkert uppfléttuefni Ég ligg hér í rúmi, enn ein andvöku nótt vildi ég væri draumurinn minn svo ég væri þú en með orðum þínum þá skarstu hjarta mitt í sundur hugsa ekki lengur því...
Sleepless I am (0 álit)
í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Sleepless I am strange summer just began Butterflies not far away Im in the green grass lying there looking at the blue sky Dreaming I am In my bed Listen to sad songs Try to sing along but forgot about the words so I close my eyes my mind escapes to the forgotten world
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok