Fortíðin er í aðalhlutverki
Hún leikur guð og fær góða dóma
sársaukinn er snákurinn
sem bítur mig

Fortíðin er verkurinn í hausnum
hún er tárin sem leka niður kinnar mínar
Hún frystir hjartað mitt
kitlar magann minn

Eldingar dauðans lýsa herbergi mitt upp
Þrumurnar heyrast á eftir
Rigningin kemur hlaupandi og skolar blóðið
ætli sólin skíni í dag
————————————————