Andvöku nótt, þögnin tekur völdin
svefnlausar sálir, svífa um göturnar
í dimma herberginu dansar ljósið í græjunum
augun virðast lifa sjálfstæðu lífi

Heilinn gerir uppreisn, flakkar hingað og þangað
einmannaleikurinn kemur í heimsókn og fær sér kaffi
tíu dropa hann drekkur, flýgur síðan í burtu
Andardrátturinn verður djúpur, dregur hægt

Meðvitundin sofnar, ljósið hefur verið kveikt
sálardansinn duninn, frelsið fagnað
í föruneyti meðal sála, ferðin farinn
Gleymda ferðin er hafin
————————————————