Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Fjarlægja þráð

í Hljóðfæri fyrir 13 árum, 1 mánuði
Stjórnendur áhugamálsins sjá um það. Það er hins vegar ekki gert nema sérstök ástæða þyki til.

Re: Nú hefur upp sú staða að Ísland muni ekki taka þátt í Eurovision þó keppnin verði sýnd, hver er þín skoðun?

í Söngvakeppnir fyrir 13 árum, 2 mánuðum
Að við myndum draga okkur út úr keppninni á þessum tímapunkti eða jafnvel seinna yrði bara tækifæri fyrir Evrópubúa til að hlægja enn meira að okkur. Þó svo að ég hafi ekki sérstaklega kynnt mér það þá myndi ég halda að það væri voða lítill munur á sektinni og að senda þáttakendur út svo ég sé enga ástæðu til að sleppa því að senda ekki fulltrúa út.

Re: Varðandi stundaskrár

í Skóli fyrir 13 árum, 2 mánuðum
Í MA fáum við stundatöfluna ca. viku fyrir fyrsta skóladag á önninni. Þó veit ég til þess að stundataflan fyrir vorönnina hafi verið tilbúin mánuði fyrir nýja önn þó svo að hún sé ekki birt fyrr en ca. viku í næstu önn.

Re: hvar er best að kaupa sér iphone?

í Apple fyrir 13 árum, 2 mánuðum
Var að skoða þetta um daginn. Minnir að hann sé ódýrastur í iSímanum. Bætt við fyrir 13 árum, 2 mánuðum:Þ.e.a.s. ef þú ætlar að kaupa hann á Íslandi. Annars sé ég líka ástæðu til þess að bæta við að iPhone er svo langt frá því að vera á skynsamlegu verði.

Re: bilasolur.is

í Bílar fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Yfirleitt þegar það er vesen að opna vefsíður virkar hjá mér að gera ctrl + shift + n og opna síðuna þar.

Re: bilasolur.is

í Bílar fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Það er ekkert vandamál hjá mér.

Re: lengur en 4 ár í framhaldsskóla

í Skóli fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Meiri menntun skemmir aldrei. Hins vegar er spurningin hvort þú telur það þessa áfanga vera auka annarinnar virði eða hvort þú viljir frekar nota tímann í e-ð annað.

Re: Skemmtistaðir útá landi

í Djammið fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Það er nóg úrval á Akureyri :)

Re: Á hvað ertu að hlusta?

í Tilveran fyrir 13 árum, 5 mánuðum
Every day með Eric Pryds. Annars vissi ég ekki annað en hann væri hættur þar til ég rakst á lagið.

Re: Að fá hljóðfæranám metið

í Hljóðfæri fyrir 13 árum, 6 mánuðum
Námsráðgjafar eiga að vita allt um þetta.

Re: Hver er aðalkeppinautur Gretu og Jónsa í aðalkeppninni?

í Söngvakeppnir fyrir 13 árum, 7 mánuðum
Mér þætti spennandi að vita hvað þú meinar með þessum orðum þínum.

Re: Heimanám?

í Skóli fyrir 13 árum, 7 mánuðum
Af minni reynslu byggist magn heimanáms á unglingastigi og upp úr að mestu hversu mikið vinnuframlag þitt er í skólanum. Þ.e. ef þú vinnur vel í skólanum þá er oftast lítið sem ekkert heimanám og öfugt. Mín skoðun er að heimanám er einn af mikilvægustu hlutum námsins. Heimanám er ekki e-ð sem kennaranir setja fyrir til að hægt að pína lata nemendur líka heima. Heimanámið er undirbúningur fyrir næstu kennslustund og efnið sem er verið að fara í. Til að byrja með erum við látin gera...

Re: Má drepa fólk á netinu?

í Deiglan fyrir 13 árum, 7 mánuðum
Svo má ekki gleyma ofbeldihneigðu hegðuninni sem fylgir þeim. Þegar maður er farinn að sjá 8 - 10 ára börn sem eru ofbeldishneigð (þó þau beri ekki merki um að hafa verið beitt ofbeldi) er greinilega e-ð að.

Re: Vitið þið um frían myndabanka fyrir heimasíður?

í Vefsíðugerð fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Þá verð ég að játa það á mig að hafa ekki skoðað þetta nógu vel. Þó vil ég benda þér á þessa grein í staðinn: http://www.digitalimagemagazine.com/blog/featured/25-free-stock-photo-sites/

Re: Vitið þið um frían myndabanka fyrir heimasíður?

í Vefsíðugerð fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Getty Images?

Re: Um börn og kex

í Tilveran fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Eða það. Go wild!

Re: Um börn og kex

í Tilveran fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Fæ ég endin djúsí rök með svarinu?

Re: Um börn og kex

í Tilveran fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Ég er nú nokkuð sammála honum. Kynslóðin okkar auðkennist af lélegu uppeldi og rækt á aumingjum. Sár staðreynd sem enginn getur neitað.

Re: Hvar fæ ég Brylcreem? (Brillíantín)

í Tíska & útlit fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Fyrir nokkrum árum var það til í apótekum, veit ekki hvernig það er núna.

Re: RÚV: LEIÐARLJÓS AÐ HÆTTA!!!

í Sápur fyrir 13 árum, 8 mánuðum
T.d. finnst heill hellingur á torrenttree.com. Annars finnst líka mikið með því að leita undir "Guiding light torrent".

Re: RÚV: LEIÐARLJÓS AÐ HÆTTA!!!

í Sápur fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Ég er svo sammála þér! Þetta er einn af þeim fáu þáttum sem ég hef áhuga á að horfa á endalaust. Því fór ég á stúfana til að athuga hvort ekki væri hægt að kaupa a.m.k. það sem ég ætti eftir að sjá af safninu. Því miður finnst ekkert nema torrent. Skemmtilegt hvað þessi fleygu orð eru algeng: In real life it is easier to buy the movie than steal it but on the internet it is easier to steal the movie than buy it. Þó er maður skapi næst að taka sér bara tíma í að finna alla þættina á torrenti...

Re: Vita foreldrar um hættulegt efni í plasti?

í Börnin okkar fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Ég fékk e-ð rosalegt keðjubréf í tölvupósti um þetta fyrir nokkrum árum. Eins og allir aðrir hugsaði ég því miður bara "mjeh".

Re: Bæta við -- kommon, í alvöru?

í Hugi fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Mín persónulega skoðun er að þessi útfærsla yrði of flókin. Hins vegar hefur sú hugmynd komið fram að hægt væri að breyta innsendu efni/svari í x margar mínútur svo framarlega sem það hefur ekki verið kosið upp eða niður, svarað eða tilkynnt.

Re: Klipping á Akureyri eftir klukkan hálf 7

í Tíska & útlit fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Minnir að það sé hægt í hár og heilsu.

Re: VLC media player

í Windows fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Ég leita að uppfærslu í hverjum mánuði. Kannski er þetta bara tölvan mín.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok