Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Vantar skothelda taktík! (14 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það reynist mér alltaf óþægur ljár í þúfu að finna hina gullnu taktík í CM, í gamla 96/97 var sama kerfið sem virkaði fyrir öll lið og maður vann allt!(5-2-3, mennirnir reyndar hér og þar um völlinn með hlaup í allar áttir, nenni ekki að útlista það frekar). Anyway, þá gengur mér ekki nógu vel að finna kerfi sem virkilega virka! Lumar einhver á 110% kerfi? (Það er líka alltaf svo mikið vesen að ákveða Forward runs, crossing, marking og allt það!) Help me Please!

Stúka eða Stæði, er einhver munur? (1 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég ætla að tryggja mér miða á seinna Rammstein tónleikana á morgunn en var að spá, er einhver munur á stúku og stæðis miðum? Ég hef heyrt marga segja að maður geti bara valsað á milli en svo hef ég líka heyrt sagt að báðir staðirnir verði stúkaðir af og sér inngangar fyrir hvorn þeirra, þannig að maður verði að vera bara þar? Hvað er málið?

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Klúðraði The Cow Level! (5 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Djöfullinn sjálfur! Ég kláraði Diablo um helgina þegar ég var á LAN-i og ég og vinur minn ákváðum að skella okkur í netleik og fórum saman í beljuborðið þvi hann tók nefnilega ekki upp Wirt's leg á sínum tíma. Jæja við förum í borðið en svo fatta ég um leið og við byrjum að berjast við beljurnar að þær eru náttla miklu sterkari en vanalega því við erum tveir! Eftir að hafa slátrað nokkrum beljum(10-15) var okkur slátrað, og við komust ekki aftur að ná í líkin því beljurnar blokkuðu portið...

Aldur er afstæður... (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
…sérstaklega þegar kemur að kvikmyndum, þessi könnun er léleg!

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

100% spila Parma! (4 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Haha! Ég var að kjósa í könnuninni um ítölsku og þá kom í ljós að Parma eru með 1005 atkvæða(2). Mig langar bara að vita hver kaus þá líka :) (af einhverjum ástæðum finnst mér Hvati mjööög líklegur:)

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Parma eru komnir í Meistaradeildina! (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Eftir frábæran sigur á Lecce, 1-2 eru Parma búnir að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni að ári. Á sama tíma og Parma unnu Lecce gerðu Milan jafntefli við Roma og náðu Parma þá 8 stiga forskoti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Parma lentu 1-0 undir á 56.mínútu þegar William Viali skoraði fyrir Lecce en á 63. mínútu skoraði Milosevic jöfnunarmark Parma(Savo fór svo útaf fyrir Di Vaio á 76. mínútu). Það var síðan á 82. mínútu sem Mbomba skoraði eftir fyrirgjöf frá Junior, 1-2 og þar við...

Thuram talar um transfer markaðinn (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
(Þessi grein er af acparma.it, hún er á ensku og ég ætla ekki að þýða hana, held að hún komi betur út á ensku) “Within a week I'll fix a meeting with the Tanzis so to talk about my future as a player. I'm not looking for new experiences, in spite of what the newspapers reported. Now, I want to concentrate on this season which is not closed, yet.” Thuram also wished Parma had better results in this season and thinks playing in the Champions League represented the least they could achieve and...

Rammstein á Laugardalsvöllinn! (41 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að það sé alveg morgunljós að miklu mun færri fengu miða á Rammstein tónleikana en vildu(4500 miðar eru nú bara skítur á priki!). Eftir því sem ég kemst næst voru allir miðar búnir eftir minna en klukkutíma sölu sem er ekki slæmt! Enda held ég að annarhvor Íslendingur sé að fíla þessa hljómsveit í ræmur, enda vel skiljanlegt þar sem þeir eru snillingar! En málið er, eins og einhver vakti athygli á, að þá fékk „litli homminn" hann Elton John að spila á Laugardalsvellinum! Rammstein...

Fuck hvað miðarnir fóru hratt! (0 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Djöfullinn sjálfur! Ég hélt nú að miðarnir myndu endast aðeins lengur! Ég var í prófi í morgunn og ætlaði í bæinn eftir hádegi og næla mér í miða, en nei nei! Það er bara uppselt! Á klukkutíma! Djöfull er ég fúll mar!

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Jæja þá fer maður að taka fram „skóna" að nýju! (7 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er skólinn loksins að renna sitt skeið og langt sumarfrí tekur við(reyndar vinna í stað skóla en frí frá skólanum er alltaf frábært!). Ég hef ekki haft CM inní tölvunni lengi, aðallega vegna þess að ég hef verið að eingbeita mér að því að klára Diablo II, en nú er ég að verða búinn með hann og svo hentar CM líka svo vel til að spila með vinnu, maður getur alltaf gripið í hann í kaffinu og matnum líka! Ég verð nú bara að segja að mig er farið að klæja í fingurna eftir að komast aftur í CM,...

Hrós til Ragga Bjarna! (4 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég verð að hrósa Ragga Bjarna og Milljónamæringunum fyrir þetta cover sitt á Smells like teen spirit, þeir taka lagið og gera það algjörlega að sínu eigin, og maður fær það á tilfinninguna að þetta sé einhver gamall slagari frá 1950-1960 og eitthvað. Þeir eru ekkert að reyna að apa eftir Nirvana(sem ég held að Raggi gamli gæti seint:) og þetta kemur bara mjög vel út hjá köllunum!

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Léleg könnun... (2 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég kaus að svara ekki(valdi þann möguleika þ.e.a.s.) því að ég hef oft tekið við skitnum liðum annað hvort í skítnum eða í neðri deildum en ég hef alltaf bjargað þessum liðum frá falli eða komið þeim upp, ég hef aldrei fallið! En það var enginn möguleiki fyrir mig til þess að velja :(

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Ég fékk gamalt Fanta í dag! (23 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvílík gríðarleg heppni! Ég var staddur á Svarta Svaninum í dag Þegar ég sá að uppá hillu stóð gamalt Fanta! ásamt öðrum gosdrykkjum í röð, og þess vegna ákvað ég að kanna hvort þeir seldu það ennþá. Stelpan sem var að afgreiða sagði neeeee en þá greip önnur frammí fyrir henni og sagði: Já það er til ein tveggja lítra! Þá sussaði hin á hana og sagði: USSSSS! ég ætlaði að drekka hana sjálf! Það er greinilegt að maður er ekki sá eini sem er hrifinn af gamla Fanta-nu :) Að sjálfsögðu keypti ég...

Til þeirra sem eitthvað kunna á Amazon (5 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvort mynduð til velja Repeating CrossBow(Socketed) eða HEavy CrossBow(sem er imbue-aður)

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Buffon á bekknum (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
(Grein þessi lenti á enska boltanum vegna einhvers fuck-up, og núna þegar ég „endurpósta“ hana er leikurinn búinn, og fór 0-1 fyrir Fiorentina) Í kvöld klukkan sjö hófst fyrri úrslitaleikurinn í ítölsku bikarkeppninni, en þar eigast við Parma og Fiorentina. Í upphafi keppninnar var Buffon ekki leikhæfur og því var Guardalben settur í markið, og hefur haldið sínu sæti þar alla keppnina þó svo að Buffon verji markið í deildinni. Fyrir úrslitaleikinni var þó íhugað að setja Buffon í markið en...

Buffon á bekknum (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Í kvöld klukkan sjö hófst fyrri úrslitaleikurinn í ítölsku bikarkeppninni, en þar eigast við Parma og Fiorentina. Í upphafi keppninnar var Buffon ekki leikhæfur og því var Guardalben settur í markið, og hefur haldið sínu sæti þar alla keppnina þó svo að Buffon verji markið í deildinni. Fyrir úrslitaleikinni var þó íhugað að setja Buffon í markið en allir þjálfarar Parma ásamst Buffon voru sammála um það að Guardalben ætti að fá að spila. Hér á eftir fylgir svo stutt viðtal við Guardalben....

McClaren til Boro (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Miðað við fréttirnar á Stöð Tvö er Steve McClaren, aðstoðarframkvæmdastjóri Man Utd, tekinn við stjórnartaumunum hjá Boro og Bryan Robson og Terry Venables eru víst báðir búnir að taka pokana sína. Gaman verður að sjá hvort McClaren getur gert almennilegt lið úr Boro því lítið hefur gengið hjá þeim miðað við ágætan mannskap. Hins vegar er nú spurningin hvað verður um United þegar Ferguson hættir, en oft hefur verið talað um McClaren sem eftirmann Ferguson. Hins vegar eru margir aðrir hæfir...

Parmaleikmaður áratugarins (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Á heimasíðu Parma er verið að velja leikmann síðasta áratugar. Á toppnum trjónir Buffon en á hæla honum kemur Fabio Canavaroreyndar meir en þúsund atkvæðum á eftir, þannig að reikna má með sigri Buffons. Skammt á eftir Canavaro eru svo Thuram og Crespo. Ef þú vilt taka þátt í kjörinu er hægt að senda e-mail í sondaggioacparma@libero.it og kjósa. Hér á eftir fylgir listi yfir alla þá leikmenn sem hlotið hafa atkvæði(94 talsins), fjöldi atkvæða og hvernig staða þeirra hefur breyst síðan að...

Hjarta mitt er brotið (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hjarta mitt brotnaði í þúsund bita, þegar ég heyrði að þú værir kominn á fast. Ég er dáleiddur af fegurð þinni, en hef aldrei sagt þér frá því. Núna ég bíð bara og vona, og er búinn að líma mitt hjarta aftur saman, kannski ég reyni aftur seinna, en ekki strax, því límið er ennþá að þorna.

Hvernig tekur maður screen shots? (NT) (5 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

SAve-in mín virka ekki :( (2 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég þurfti að formatta tölvuna mínu um daginn en áður en ég gerði það uninstall-aði ég RA2 og hirti save-in, svo núna þegar ég er buinn að setja leikinn inn aftur er eins og hann finni ekki save-in! Einhver ráð?

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom, Someone Throws Me A Shovel

Gríðarleg vonbrigði! (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Grindvíkingar steinlágu núna í fyrstu umferðinni fyrir Keflvíkingum. Grindvíkingar voru ekki að spila vel og það gekk illa að skapa sér færi, reyndar voru Keflvíkingarnir ekkert að spila neinn súperbolta en náðu engu að síður að knýja fram sigur í þessum baráttuleik. Keflvíkingar komust yfir snemma í leiknum með marki frá Hauka Inga eftir slæm mistök hjá Goran Lukic í vörn Grindvíkinga. Óli Bjarna jafnaði svo leikinn á 43. mínútu að ég held þegar hann skoraði úr víti sem Hallur (Ásgeirsson?)...

Skólaböl (1 álit)

í Skóli fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég birti þetta ljóð á Ljóðum hérna um daginn og langaði að deila því með ykkur hérna á Skólanum, þar sem ljóðið er svo tengt áhugamálinu. Ég vil þó vekja athygli á því að ég hef ekkert á móti skólanum og á þetta ljóð sér enga stoð í raunveruleikanum :) Skólaböl Yfir bókunum nemendurnir sveittir sitja, þegar á önnina er farið að halla. Kennararnir sinn dómsdagsboðskap flytja. „Bætið ykkur ellegar þið öll munið falla!" Kennarar eru haldnir kvalalosta, okkar foreldrar okkur í þrældóm selja....

Skólaböl (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Skólaböl Yfir bókunum nemendurnir sveittir sitja, þegar á önnina er farið að halla. Kennararnir sinn dómsdagsboðskap flytja. „Bætið ykkur ellegar þið öll munið falla!" Kennarar eru haldnir kvalalosta, okkar foreldrar okkur í þrældóm selja. Kennarar eru haldnir blóðþorsta, Alla daga þeir okkur kvelja.

ALVEG BRJÁLAÐUR! (1 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Djöfull varð ég ótrúlega fúll í dag þegar ég var að spila Diablo, ég kláraði Act III og byrjaði aðeins á act IV. Síðan klukkan þrjú ákvað ég að hætta og save-a að sjálfsögðu í leiðinni, síðan ætlaði ég að líta á kallinn því ég var nýbúinn að kaupa mér nýja brynju. EN ÞÁ VAR KALLINN ENNÞÁ Í GÖMLU GULL BRYNJUNNI OG ÞAÐ KOM Í LJÓS AÐ ÞAÐ HAFÐI EKKI SAVE-AST! DJÖFULL VARÐ ÉG BRJÁLAÐUR! Hefur einhver annar lent í þessu?

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ Everytime I Think I've Hit The Bottom,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok