Nú er skólinn loksins að renna sitt skeið og langt sumarfrí tekur við(reyndar vinna í stað skóla en frí frá skólanum er alltaf frábært!). Ég hef ekki haft CM inní tölvunni lengi, aðallega vegna þess að ég hef verið að eingbeita mér að því að klára Diablo II, en nú er ég að verða búinn með hann og svo hentar CM líka svo vel til að spila með vinnu, maður getur alltaf gripið í hann í kaffinu og matnum líka!

Ég verð nú bara að segja að mig er farið að klæja í fingurna eftir að komast aftur í CM, taka við einhverju ekkert svo góðu liði, scouta eftir ungum leikmönnum og reyna að skapa nýtt stórveldi!

Ég vildi í rauninni bara deila því með ykkur hvað CM er ótrúlega góður leikur og allir sem hafa spilað hann eru ótrúlega heppnir, þetta er gjöf frá Guði!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _