Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Eternal Pyre > EP gefin út af Slayer í dag (6 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Veit einhver hvar hægt er að nálgast þetta? Kannski bjartsýni, voru aðeins 5000 eintök framleidd þannig þetta er líklega allt selt, en maður má vona :P.

Skrúfur fyrir pickuppa (9 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Nú er ég í miðjum klíðum við að skipta út pickuppunum í einum gítarnum mínum (2x humbucker). Er búinn að rífa gömlu úr og ætlaði að fara að setja hina í, DiMarzio DP151 PAF Pro, en þá kom babb í bátinn. Skrúfurnar tvær sem eru beggja vegna hvors pickups (tvær fyrir hvorn pickup) eru of stórar fyrir nýju pickuppana. Það sem ég er að pæla er hvort það sé kannski hægt að fá skrúfur sem passa hjá Rín? Þeir eru nú með umboðið fyrir DiMarzio.

Gítarleikari leitar eftir fólki að spila með... (21 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Sælinú gott fólk. Ég ætla ekki að vera með neinar málalengingar og koma mér beint að efninu. Ég er svona að leita mér að einhverju bandi/fólki að spila með til gamans. Ég er 20 ára (´85 árgerð) og er búinn að spila á gítar í tæplega 3 ár og kann eitthvað fyrir mér. Einskorða mig ekki við neina eina tónlistarstefnu, er tilbúinn að skoða allt. Er staðsettur í vesturbænum, nánar tiltekið á stúdentagörðunum. Það skal einnig tekið fram að ég á því miður ekki bíl til að transporta mér og mínu....

Skemmtilegt system (43 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Tékkið á http://www.last.fm , skemmtilegt system þykir mér. Er með þetta í undirskriftinni minni fyrir þá sem vita ekki hvað þetta gerir. Endilega komið ykkur upp account :P.

TOCA 3 (0 álit)

í Háhraði fyrir 18 árum
Væri ekki upplagt að henda inn demói af TOCA 3 fyrir okkur sem búum svo illa að hafa takmarkað erlent download? http://www.fileplanet.com/promotions/toca/

Smá kveðskapur (16 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég sá mér til mikillar furðu að fólk var farið að kveðast á hér á korkinum, og ákvað að henda inn einu sem ég var að setja saman rétt í þessu. Ákvað að gera þetta bara almennilega með stuðlum og höfuðstöfum og því öllu! —– Huganotendur hópa sig saman, helvíti brattir og bera sig vel. Kárnar nú fjörið, því hvergi er daman, hvað gera þeir nú við sérhvern mel? Þeir ákveðið hafa að ei verði friður, allir þeir samþykkja slagsmálamót. Hetja birtist og hamrar hina niður, hans heiti var og er...

Vantar PS2, eldri gerð (ekki slim-line) (15 álit)

í Leikjatölvur fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ekki er ofurlítill möguleiki á að einhver hugalingur hérna lumi á gömlu PS2 vélinni? Þarf að vera í góðu standi, s.s. spila leiki án vandræða. Gott væri að fjarstýring(ar) fylgdu með, en ekki nauðsyn. Væri alveg magnað ef einhver lumar á slíku á góðu verði :). Látið vita hér eða með einkapósti. Takk fyrir.

Könnun (1 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er ekki vanur að nöldra, og þetta mun vera mitt fyrsta könnunar nöldur. En það fer bara í taugarnar á mér þegar kannanir hafa margar útgáfur af sama svarmöguleika. Eins og t.d. “já” og “auðvitað” sem hafa bæði merkinguna “já”. Ok, ég er hættur að þusa.

Iron Maiden aðdáendur, check this.. (16 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég veit að það hafa komið þvílík ógrynni af Maiden þráðum hérna, en ég gat bara ekki hamið mig. Ég er nú enginn uber fan, þó mér finnist þeir vissulega mjög skemmtilegir, en þetta video hér að neðan finnst mér alveg hreint magnað. Gítarleikarar eiga væntanlega eftir að meta það meira en þeir sem ekki spila, en allir ættu nú að hafa gaman af þessu. Þetta er by the way acoustic útgáfa af Run to the Hills. http://www.youtube.com/w/Run-To-The-Hills-www.glennroth.com?v=oHCL9Z0pksc&

Smá flipp...og ósk í leiðinni... (8 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hér með þessum þræði óska ég eftir þræði til að posta lögum/riffum/skemmtilegum coverum til að deila með öðrum og hafa gaman af. RoadRunner, hvað hefurðu um þetta mál að segja? :). En allavega, hér er smá flipp frá mér. Var bara að glamra eitthvað og ákvað að leika mér aðeins með Friends theme lagið. Setup í þessari upptöku var: Parker USA Nitefly SA > Spider II 212 > cheap Sony F-V120 mic > innbyggt hljóðkort > tekið upp og EQ-að í Steinberg Nuendo. Trommurnar eru gerðar í pörtum í Midi...

Formatting Forrit? (5 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég postaði þessu líka á hugi/windows, en þar sem flettingarnar þar eru sárafáar ákvað ég að henda þessu hér líka í von um að þið vitið eitthvað: Er hægt að downloada einhverjum fríum forritum til að formatta harðan disk? Eitthvað svipað og Partition Magic kannski? Er kominn með eitthvað trial af því en þarf full til að formatta. Er nefninlega í vandræðum með að formatta í gegnum Windows og mér sýnist eitthvað svona forrit í anda Partition Magic vera mín lausn úr þessu.

Formatting Forrit? (2 álit)

í Windows fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Er hægt að downloada einhverjum fríum forritum til að formatta harðan disk? Eitthvað svipað og Partition Magic kannski? Er kominn með eitthvað trial af því en þarf full til að formatta. Er nefninlega í vandræðum með að formatta í gegnum Windows og mér sýnist eitthvað svona forrit í anda Partition Magic vera mín lausn úr þessu.

Agnarsmá hugmynd (19 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Væri ekki hægt að hafa fídus hérna á hljóðfæri þar sem fólk gæti sent inn upptökur eftir sig? Gæti verið svipað system og lögin sem voru send inn á sínum tíma á metal áhugamálinu t.d. Væri gaman að heyra frá öðrum. Kannski er klukkan orðin of margt og ég ekki að hugsa skýrt, en þetta er bara smá pæling.

Undarlegt vandamál með windows (0 álit)

í Windows fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég er með Win XP Home Edition og með Service Pack 2 uppsettann. Eftir að hafa activate-að windowsið hefur svolítið undarlegt verið að gerast. Í hvert skipti sem ég kveiki á tölvunni kemur upp gluggin “This copy of windows has to be activated…blabla..”. Ég vel að activate-a og vel activate by internet, vel að registera ekki og þá kemur “checking for connectivity”. Næsti gluggi sem kemur er svo “Thank you for activating windows o.s.frv..”. Ég þarf ekkert að stimpla inn eða neitt þannig heldur...

JVC XV-521 DVD spilari til sölu (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Er að auglýsa hérna fyrir kunningja minn. Spilarinn er ca. 2 ára gamall, í topp ásigkomulagi og virkar vel. Verðhugmynd, 8þús. Sendið mér hugaskilaboð ef áhugi er fyrir hendi.

Í tómu tjóni með MSI Wireless netkort (9 álit)

í Vélbúnaður fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég verslaði mér í dag MSI Wireless netkort. Ég er búinn að setja það upp og tölvan finnur það, ekkert vandamál með það. En ég tengist inn á ranga tengingu, fer alltaf beint inn á tenginguna í húsinu við hliðina, en ekki í húsinu sem ég er í. En það er ekki aðal vandamálið. Í WLAN Utility stendur að “Windows is currently managing this adapter”. Ég sé bæði vitlausu tenginguna og svo tenginguna sem ég á að fara inn á þarna í WLAN, en get ekkert í því gert þar sem Windows er við stjórnvölina....

Varðandi útreikning á forgjöf (4 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég hef spilað golf töluvert lengi, en ekkert að ráði fyrr en í sumar. Hafa venjulega verið 2-3 hringir á ári, sem er alls ekki nógu gott, fór t.d. bara 1 sinni í fyrrasumar. En nú í sumar hef ég farið nokkuð oft og er farinn að velta fyrir mér þessari forgjöf. Getur maður reiknað hana út sjálfur? Eða þarf maður að skila inn skorkortum eða álíka til að fá metna forgjöf? Hvernig virkar þetta? Er orðinn þreyttur þegar á því þegar maður hittir á golfara, þá er nánast undantekningarlaust spurt um...

Hvað eruð þið að drive-a? (21 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Er bara svona að tékka á fólkinu, hvað hafið þið drive-að? Ég tók rétt tæpa 200m í gær og var ágætlega sáttur með það, þráðbeint og á besta stað.

Snæfokstaðir (0 álit)

í Veiði fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég verð að veiða þar á næstunni og var að spá hvort einhverjir hérna hefðu farið þangað í ár? Gústi í Veiðisport vissi ekki hvort það hefði veiðst eitthvað, hafði ekkert verið talað við hann.

Magnari til sölu, Marshall MG Series 50W (12 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ef þið hafið áhuga, endilega skoðið: http://10.is/uppbod/Skoda_Voru.asp?ID=920

Maiden til Íslands, staðfesting?! (24 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Samkvæmt http://www.rr.is mun Iron Maiden spila í Egilshöllinni þann 7. júní næstkomandi. Reyndar er ekki búið að setja það inn á official síðuna hjá Maiden, en sá dagur er ekki upptekinn. Nú veit ég ekki hvort þetta séu gamlar fréttir, en ég hef ekki enn séð þetta áræðanlegar heimildir hér á huga þannig ég ákvað að henda þessu hingað.

Vandamál með task manager (6 álit)

í Windows fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Task managerinn hjá mér er í tómu tjóni þessa stundina. Hann hefur aldrei verið til vandræða, en einn daginn leit hann svona út: http://easy.go.is/hypnotoad/myndir/task%20manager.jpg Ef einhver veit hvernig ég get fengið aftur hið upprunalega útlit má viðkomandi endilega svara. Þess má geta að ég er með WinXP Home

Áhugafólk um slæmar kvikmyndir (16 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég er mikill áhugamaður um slæmar kvikmyndir sem hægt er að hlæja að. Verða að vera gamlar hryllings- eða spennumyndir. Þannig ef einhver veit um einhverjar sniðugar myndir má viðkomandi láta vita. Ég verð að segja að sú versta sem ég hef horft á sé “Surf Nazis Must Die”, en hún var svo hræðileg að ekki einu sinni var hægt að hlæja að henni, nema þegar maður hugsar til baka. Maður öðlast mikla lífsreynslu á að horfa á þessa mynd.

Midi Maker og álíka forrit.. (5 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég var með trial útgáfu af Midi Maker, mjög skemmtilegt forrit, en nú er tíminn expired og ég kemst ekki í það. Vitið þið um einhver álíka forrit til að búa til midi tónlist í tölvunni? Helst þá forrit sem eru frí, en skiptir svo sem ekki öllu.

Stöðugar netárásir (8 álit)

í Windows fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Svo er mál með vexti að ég sæti stöðugum netárásum. Ég er ekki með router (er með loftlínu samband hjá Emax) en ég er með Blackice eldvegginn og er með hann stilltan í paraniod stillinguna. T.d., síðustu 90mín hafa verið 2 Critical Events og 11 Suspicious Events. Síðustu 90 klukkustundir hafa verið 22 Critical Events og 196 Suspicious Events. Mér finnst þetta ekkert sniðugt og skil ekki af hverju þetta er svona. Ef einhver veit hvað hægt sé að gera til að minnka þetta má viðkomandi endilega...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok