Nú er ég í miðjum klíðum við að skipta út pickuppunum í einum gítarnum mínum (2x humbucker). Er búinn að rífa gömlu úr og ætlaði að fara að setja hina í, DiMarzio DP151 PAF Pro, en þá kom babb í bátinn. Skrúfurnar tvær sem eru beggja vegna hvors pickups (tvær fyrir hvorn pickup) eru of stórar fyrir nýju pickuppana. Það sem ég er að pæla er hvort það sé kannski hægt að fá skrúfur sem passa hjá Rín? Þeir eru nú með umboðið fyrir DiMarzio.