Svo er mál með vexti að ég sæti stöðugum netárásum. Ég er ekki með router (er með loftlínu samband hjá Emax) en ég er með Blackice eldvegginn og er með hann stilltan í paraniod stillinguna. T.d., síðustu 90mín hafa verið 2 Critical Events og 11 Suspicious Events. Síðustu 90 klukkustundir hafa verið 22 Critical Events og 196 Suspicious Events. Mér finnst þetta ekkert sniðugt og skil ekki af hverju þetta er svona. Ef einhver veit hvað hægt sé að gera til að minnka þetta má viðkomandi endilega deila því með mér.