Ég er mikill áhugamaður um slæmar kvikmyndir sem hægt er að hlæja að. Verða að vera gamlar hryllings- eða spennumyndir. Þannig ef einhver veit um einhverjar sniðugar myndir má viðkomandi láta vita.

Ég verð að segja að sú versta sem ég hef horft á sé “Surf Nazis Must Die”, en hún var svo hræðileg að ekki einu sinni var hægt að hlæja að henni, nema þegar maður hugsar til baka. Maður öðlast mikla lífsreynslu á að horfa á þessa mynd.