oj mamma þín er greinilega svona pirrandi fólk sem fer í gegnum bústaðaveginn án þess að eiga neitt erindi í fossvoginn. Þetta fólk stíflar götuna og lætur mann mæta of seint í skólann!
Bara þú veist, ekki subbulegur eða illa lyktandi eða eitthvað svoleiðis. Meiri kröfur geri ég ekki. Svo er náttúrulega bara mismunandi smekkur, ég sé t.d. að sumar gellur hérna eru að fýla voða mikið sítt hár, eitthvað sem heillar mig bara 0.
Nei, væntanlega er tannlæknirinn sjálfur ekki að fá 10.000 kall beint í vasann fyrir einn klukkutíma. Það er alls konar aukakostnaður þarna sem þú ættir aðeins að pæla í (fíflið þitt) Bætt við 8. janúar 2010 - 18:20 æ sorry þetta með fífl, ég hef bara ekki kallað neinn fífl í svo langan tíma og gat bara ekki haldið aftur af mé
Dökkgræni frá Clinique, og svo guli frá maybelline (hef ekki glóru hvað þeir heita). Reynar fýla ég þennan clinique aaaðeins betur, en hinn er bara mun ódýrari og ég er fátækur námsmaður.
ójá, þvílíkur metnaður sem það var! ég get ekki skilið í dag hvernig ég nennti alltaf að vera að dútla í þessu og skreyta bloggin með myndum og lituðum stöfum o.s.frv. Skil eiginlega bara mest ekki hvernig ég nennti að blogga á hverjum degi um ómerkilegt líf mitt sem 7. bekkings.
haha pabba mínum finnst það líka fyndið og gerir alveg í því að stríða krökkunum sem eru að vinna í þessum búðum. Til dæmis þegar hann var að kaupa avókadó og manneskjan á kassanum spurði hann “hvað er þetta?” þá gat hann ekki bara svarað venjulega heldur þurfti endilega að rugla aðeins í manneskjunni með “nú þetta er lárpera!” og auðvitað var hún engu nær.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..