Hvað er að gerast við þetta land? Við sökkvum bara lengra og lengra niður í okkar eiginn skít. Maður hefði haldið að verslunareigendur myndu hugsa rökrétt og fjárfesta í einhverju sem að myndi svo seljast af einhverju viti.

Ég er auðvitað að hneykslast á úrvalinu á Converse skóm í dag.
Það eru núll komma engar líkur á að finna Converse skó fyrir sjálfan sig í dag nema þú sér dvergur og notir 40 og niður í skóstærð. Svo eru bara til svartir eða hvítir. Þetta er til skammar!

Hvernig væri að einhver myndi bara taka sig til og opna ALMENNILEGA skóbúð með ALMENNILEGUM skóm. Það gengur enginn um í háhæluðum skóm, GROW UP!

Ég meina þetta meikar alveg sens (sense?), horfiði í kringum ykkur, þessar fjárans tuskur eru vinsælustu skór í heiminum.

Ég fór í Kringluna áðan í þeirri von að finna skó í einhverjum öðrum lit heldur en svörtum. Helst brúnum eða hugsanlega rauðum. “Nei,” sagði búðarkonan. “Þú finnur ekki svona skó í 44 á öllu landinu.” Mig langaði að hrækja á sjálfan mig.


Ég er fokking brjálaður, ég nenni ekki að fara til útlanda til þess að finna mér almennilegann skófatnað.
If writers wrote as carelessly as some people talk, then adhasdh asdglaseuyt[bn[ pasdlgkhasdfasdf.