Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ökumaður eða bíll ? (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég hef fylgst með Formúlu 1 síðan sjónvarpið byrjaði að sýna frá henni. Varð strax fylgismaður Schumachers þó svo að það megi dæma margt i fari hans, t.d. hroka í viðtölum eða of mikla hörku í keppnum. Það hefur alltaf verið talað um hann sem einn hæfileikaríkasta ökuþórinn í Formúlunni og þar með einn af þeim betri. Samt sem áður hefur honum ekki tekist að hampa titlinum í þessi þrjú? ár sem hann hefur verið hjá Ferrari. Að vísu hefur Ferrariliðið styrkst til muna eftir að hann gékk til...

Draugurinn í Defensor (1 álit)

í Geimvísindi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hér er grein sem birtist í miðvikudagsblaði DV þann 2. ágúst 2000 og birtist hér orðrétt; Húsið Borgartún 25-27, sem gerði Guðna Helgason rafvirkjameistara að skattakóngi Reykjavíkur, er gamalt draugabæli. Húsið gekk lengi undir nafninu Defensor en hafði ekkert götunúmer. Þar hafði Byggingarfélagið Brú aðsetur á sjötta áratuginum. Félagið stóð fyrir flestum meiri háttar byggingarframkvæmdum í borginni og reisti meðal annars Borgarspítalann. Í miðbyggingu Defensors, sem mun vera elsta...

Íslenskir Ufo linkar (0 álit)

í Geimvísindi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Nokkrir íslenskir Ufo linkar http://www.hi.is/~magnussk/geimveruvefurinn.html http://www.msund.is/heild/Efnisheimur/UFO/Default.htm http://www.mmedia.is/~faffh/fama.html

Doom- kvikmyndin (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Að kvikmynda tölvuleiki ? Það gékk einu sinni sú saga að kvikmyndin “Evil Dead” sem mig minnir endilega að sá ágæti leikstjóri Sam Ramini (minnir að það sé nafnið) hafi verið byggð á tölvuleiknum Doom. Fjallar hún um mann sem lendir einhvern veginn inni í öðru tímasvæði (Mad Max fílingur í umhverfinu) og berst við óvætti mikla með keðjusög við hönd. Hvort þetta sé satt eður ei veit ég ekki en samt sem áður hvet ég alla til að sjá þessa stórsnjöllu B-mynd. Sem er góð blanda af ævintýra-,...

Eru menn orðnir þreyttir á upphækkunum ? (2 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Áður fyrr kapkostuðu menn að hækka jeppana sína upp (og jafnveg bíla sem ekki flokkast sem jeppar). Nú eru hins vegar alla vega tveir jeppar á götunni sem er búið að lækka. Annar er svartur Dodge Ram sem er alveg svakalegur. Lægra undir lægsta punkt á honum en á flestum sportbílum hér á landi. Mætti þessum bíl einu sinni að kvöldi til í myrkri og ég var ekki alveg klár á því hvað nálgaðist mig. Hinn er síðan aftur á móti ´99 eða ´00 árgerð af stærri týpunni af Landcrusier. Hef ekki rekist á...

Hringadróttinssaga kvikmynduð (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Nú er von á kvikmynd gerð eftir meistraraverki Tolkiens. Ekki eru allir jafn áhugasamir því stór hópur aðdáðanda Tolkiens telur kvikmyndina hálfgert guðlast. E.t.v. er það því að kenna að þegar reynt var að segja fyrsta hluta trílógíunnar í teiknimyndaformi. Það tókst miður vel. Ég sá þessa teiknimynd og varð fyrir miklum vonbrigðum. Kannski hef ég svona undarlegt ímyndunarafl en þetta var bara alls ekki það sem ég hafði séð fyrir mér er ég las söguna sjálfa. Það sem þótti helst að myndinni...

Bermúdaþríhyrningurinn (2 álit)

í Geimvísindi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Greinin “gimsteinar og andlegt” eftir stakka sem birtist hér fyrir nokkru er að mörgu leiti merkileg og langaði mér til að bæta aðeins við hana. Á undanförum árum hefur áhugi á hverskonar orkukristöllum vaxandi. Fólk notar þá til að ná innri ró, fæla burt sjúkdóma, öðlast betri einbeitingu ofl. ofl. sjálfur hef ég ekki reynslu af þessari nýjung. Þið hafið sennilega flest heyrt um Bermúdaþríhyrninginn í Atlantshafinu og þau óútskýrðu hluti sem eiga að hafa gerst þar. Ein af þeim skýringum sem...

Íslensk saga (0 álit)

í Geimvísindi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hér er ein íslensk UFO-saga. Ég heyrði hana í einhverjum kvöldþætti á Bylgjunni eða í pistlum Illuga Jökulssonar á Rás 1. En eitt bjart sumarkvöld í Reykjavík sást bjartur ókunnur hlutur sveima yfir Kópavogi, þeim hluta sem er nær Fossvoginum og sást hluturinn greinilega frá Bústaðaveginum. Hluturinn á að hafa sveimað nokkra stund yfir Kópavoginum og síðan “sveimað” í átt að Borgarspítalanum, þar sem hann vakti mikla athygli vaktarinnar í turninum. Síðan á hluturinn að hafa horfið á braut.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok