Að kvikmynda tölvuleiki ?
Það gékk einu sinni sú saga að kvikmyndin “Evil Dead” sem mig minnir endilega að sá ágæti leikstjóri Sam Ramini (minnir að það sé nafnið) hafi verið byggð á tölvuleiknum Doom. Fjallar hún um mann sem lendir einhvern veginn inni í öðru tímasvæði (Mad Max fílingur í umhverfinu) og berst við óvætti mikla með keðjusög við hönd.
Hvort þetta sé satt eður ei veit ég ekki en samt sem áður hvet ég alla til að sjá þessa stórsnjöllu B-mynd. Sem er góð blanda af ævintýra-, splatter- og gamanmynd með rómantísku ívafi.