Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Engifer
Engifer Notandi síðan fyrir 14 árum, 10 mánuðum 30 ára kvenmaður
1.024 stig Sambandsstaða: Ekki á lausu
Hefur áhuga á: Körlum

Gettu Betur (7 álit)

í Skóli fyrir 14 árum, 1 mánuði
Ég vil óska MR-ingum til hamingju með yfirburðasigur í Gettu Betur í kvöld =) =) Það væri ekki verra ef þið haldið þessu áfram ;)

Rotta (57 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 1 mánuði
Það er rotta í garðinum mínum. Hún lítur svolítið út eins og íkorni og er bara voða krúttleg =) Aftur á móti eru ekki allir jafn ‘ligeglad’ og ég, nágrannakonan stökk upp á stól og ætlar sér ekki að fara þaðan í bráð. Mér finnst það frekar fyndið.

Hefur þú búið í útlöndum? (22 álit)

í Ferðalög fyrir 14 árum, 1 mánuði
Hefur þú búið í útlöndum? Og ef svo er, hvaða landi/löndum? Ég hef tvisvar búið á Norður-Spáni, Galiciu nánar til tekið =)

Tími (1 álit)

í Hugi fyrir 14 árum, 1 mánuði
Væri ekki sniðugt að geta stillt leitarvélina þannig að hægt væri að ráða hversu gamlar niðurstöðurnar eru? Ég lendi sífellt í því að vera að leita að einhverju og fá bara margra ára gamlar niðurstöður =( (Ef það er þegar hægt getur þá einhver kennt mér það? Ég er alger kjáni þegar kemur að svona hlutum :$ )

Væl (30 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 1 mánuði
Dagurinn minn hefur verið ömurlegur og því ætla ég að leyfa mér að væla. Ég er þreytt, mér er kalt, ég er slöpp og að byrja að fá hálsbólgu. Ég er að vinna sem leiðtogi í barnastarfi og í dag tóku nokkrir litlir pjakkar sig saman og réðust á mig með prikum, grjóti, spörkum og kýlingum. Jibbí. Vinkona mín var að skipta um bekk og hefur ekki talað við mig síðan. Ég hef aldrei verið jafn ein og mér líður ömurlega. Á morgun ætla ég ekki einu sinni að hafa fyrir því að fara fram úr.

Kossar og knús (1 álit)

í Húmor fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Þetta og þetta er það kjánalegasta sem ég hef séð í dag. Þá er mikið sagt.

Öskudagshugi (53 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Á morgun er öskudagur, en þið getið aldrei uppá hvað ég ætla að vera =D Ég ætla að vera hugi.is! Frábær hugmynd, yes? (Ef einhver hefur verið það áður er viðkomandi líka frábær) Það væri líka skemmtilegt ef sem flestir hugarar væru hugi og maður gæti spottað þá á götum úti =) Bætt við 17. febrúar 2010 - 00:55 Jæja, þá er ég næstum búin með bolinn og löngu hætt að nenna þessu. Ef þið sjáið einhvern í flottum og vönduðum hugabol á morgun er það pottþétt ekki ég.

Jæjjjja (1 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Langar ykkur ekki til að gera þetta áhugamál aðeins virkara? Það gengur ekki að þetta sé svona dautt! Sendið mér gömul ljóð eftir ykkur til að birta í ljóðadálkinum mínum, (þemað er ljóð eftir ung og fersk skáld, krúttleg og jafnvel fyndin nýgræðingaljóð) og látið jafnvel fylgja með einhverskonar ‘hugleiðingu frá höfundi’, segið okkur hvað þið voruð að hugsa meðan snilldarverkin spruttu fram =) Ég hef ekki fengið nein ljóð send enn sem komið er, þetta gengur ekki :-O

Spurt fyrir vinkonu (40 álit)

í Rómantík fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Hver er skoðun hugara á ‘94 módeli og ’90 módeli saman? Persónulega finnst mér eitthvað frekar rangt við það… Væri í lagi eftir nokkur ár, þegar þroskamunurinn er minni en þangað til, obbobbobb. Hvernig er slíkt litið hér á bæ?

Tetris (3 álit)

í Húmor fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Tetris-guðinn Þarf að segja meira?

Dverghamstrabúr (0 álit)

í Gæludýr fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Óska eftir dverghamstrabúri =) Hafið samband með einkaskilaboðum

ÓE fiðlu (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Óska eftir að kaupa ódýra fiðlu. Þarf alls ekki að vera fín sinfóníufiðla, mig langar bara til að prófa mig áfram. Hafið samband með einkaskilaboðum =) Bætt við 27. janúar 2010 - 22:16 Er búin að finna mér fiðlu =) =)

Endalaus vandræði (79 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Varúð, unglingadrama. Ef þú hefur ekki áhuga á slíku skaltu forðast að lesa lengra. You have been warned. ——– Ég þarfnast nauðsynlega ráðlegginga og jafnvel, ef einhver er í stuði til þess, smá hughreystingar. Þannig er mál með vexti að ég á tvær vinkonur í skólanum sem vill svo til að hata hvor aðra. Mjög skemmtileg staða. Síðasta vor var bekkjunum skipt upp og tók nýja skiptingin gildi þegar skólinn byrjaði aftur í haust. Ég var mjög ánægð því ég lenti með báðum vinkonum mínum í bekk. Þær...

Sniðugt mjög (6 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 3 mánuðum
freerice.com er sniðug síða sem ég rakst á rétt í þessu. Á henni er hægt að styrkja hjálparstarf með því einu að svara spurningum. Maður á að svara einföldum spurningum og fyrir hvert rétt svar gefur síðan 10 hrísgrjón. Það virðist kannski ekki vera mikið en safnast þegar saman kemur. Það kostar ekkert að taka þátt svo endilega skoðið þetta. =) Ég frétti af þessari síðu í gegn um Project For Awesome á youtube.com ef einhver er að velta því fyrir sér =) Bætt við 10. janúar 2010 - 02:41 Gaman...

Frost (1 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Foss kennda, ástar og sorgar, í klakaböndum. Mitt hjarta svo kalt. Án þín. Lífsviljinn fjarlægur og óþekktur. Horfinn úr ungri sál. Andinn sem þurrausinn brunnur eftir stendur. Bíður eftir vorinu, leysingum, lífinu. Bíður þín. — Tilfinningalegur vetur.

Ísland (111 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Ég er að vinna að verkefni og markmið mitt er einfalt. Að fá eins mörg mismunandi svör og ég get við eftirfarandi spurningu; Hvað finnst ykkur vera jákvætt við Ísland Það væri yndislega vel þegið ef þið gætuð hjálpað mér, fyrirfram þakkir =) Ég veit að sömu hlutir eiga eftir að koma aftur og aftur en það er allt í lagi, hver og einn gætur orðað sitt svar á persónulegan hátt með eigin orðum. =)

Ofurlítið pirrandi (16 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Því miður lenti ég í því að týna skærunum mínum um daginn. Ég leitaði lengi lengi en fann þau hvergi! Ég reyndi að muna hvenær ég hafði notað þau síðast en allt kom fyrir ekki. Svo gerist það að mig dreymir um þau. Mig dreymir oft svona hluti svo það er ekkert skrítið. (þessir draumar eru líka yfirleitt marktækir) En allavegana, þá dreymir mig hvar skærin eru og mundi um leið eftir að hafa sett þau þar. (já, ég var vör um að mig væri að dreyma svo ég gat hugsað þá hugsun, þótt ég væri...

Leikjatölvur (22 álit)

í Leikjatölvur fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Eins og flestir ættu að vita þá fara jólin að nálgast bráðum og er það stefnan á mínu heimili að gefa yngsta meðliminum leikjatölvu. Nú veit ég ekkert, og þá meina ég ekkert, um leikjatölvur og spyr því; Hver er munurinn á PS2 og PS3, fyrir utan að önnur er nýrri? Eru sömu leikirnir? Hvar er hægt að fá ódýrar, og þess vegna notaðar, leikjatölvur? (ef einhver er að selja, endilega látið mig vita)

Google (28 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Ég elska Google. Mig langar til að semja lag til heiðurs Google. Hver er sammála? =D Já, það var eiginlega bara þetta. Pointless, ég veit.

Önnur lítil hugsun (2 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Þessu laust í höfuðið á mér þegar ég var við það að sofna í gærkvöldi. Ég rétt náði að skrifa það niður áður en ég gleymdi því. Þegar þú hlærð springa blómin út eins og draumar sem rætast rignir af himnum gleðitárum rís sólin um miðja nótt, til þess eins að hlusta.

GleðiGleðiGleði (92 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 5 mánuðum
oooog svo dash af hamingju! Af hverju? Því ég (sem kann nánast ENGA tónfræði) var að kenna sjálfri mér að spila Hallelujah eftir Leonard Cohen á pianó út frá gítarhljómum og er að springa af stolti =D Já, ég veit, það er ekki erfiðasta lag í heimi en miðað við mína reynslu af að spila svona lög á piano er þetta bara mjög gott hjá mér =) Bætt við 7. nóvember 2009 - 11:29 Og þegar ég segi svona lög, þá meina ég sungin lög sem eitthvað vit er í, ekki einhver klassík sem maður lærir þegar maður...

Hugsun (4 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Hugsun sem ég ákvað að koma í orð. Hún er algerlega einföld og flúrlaus en kannski hún sé bara fallegri fyrir það. Þú ert með svo fallegt bros. Ég vildi að ég gæti tekið það og sett það undir koddann minn. Alltaf þegar ég svæfi illa tæki ég fram brosið þitt. Þá liði mér betur.

Spurning (2 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Hvað heitir það þegar maður semur ljóð til einhvers sem er dáinn, t.d. sem eru birt í minningagreinum og slíku?

/dating service? (43 álit)

í Rómantík fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Hversu margir hér eiga eða hafa átt kærustu/kærasta sem viðkomandi kynntist í gegnum eða vegna huga.is? Viðurkennið nú syndir ykkar, ykkur mun líða betur á eftir ;-) Ég sjálf er svo pro að ég tek bara facebook á þetta ;D

Ljóð á engilsaxnesku (6 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Ljóð samið til einstaklings sem talar ekki íslensku, og því er það á ensku. Það hefur engan titil. I am fighting a hopeless war, losing, and losing myself Endlessly looking for you, trying to find your eyes in the crowd If I ever stop to breathe try to rest from the pointlessness I am haunted by the memory, the reflection of your smile Endilega deilið skoðunum ykkar með mér, kæru samhugarar :-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok