freerice.com


er sniðug síða sem ég rakst á rétt í þessu.
Á henni er hægt að styrkja hjálparstarf með því einu að svara spurningum.
Maður á að svara einföldum spurningum og fyrir hvert rétt svar gefur síðan 10 hrísgrjón.
Það virðist kannski ekki vera mikið en safnast þegar saman kemur.
Það kostar ekkert að taka þátt svo endilega skoðið þetta. =)

Ég frétti af þessari síðu í gegn um Project For Awesome á youtube.com ef einhver er að velta því fyrir sér =)

Bætt við 10. janúar 2010 - 02:41
Gaman að sjá að fólk veit af þessu og hefur jafnvel bjargað mannslífum =D

Svona lagað er gott þegar maður hefur ekki endilega efni á að gefa sjálfur.

Endilega haldið áfram og gefið fleiri grjón =) =)