Því miður lenti ég í því að týna skærunum mínum um daginn.
Ég leitaði lengi lengi en fann þau hvergi! Ég reyndi að muna hvenær ég hafði notað þau síðast en allt kom fyrir ekki.

Svo gerist það að mig dreymir um þau. Mig dreymir oft svona hluti svo það er ekkert skrítið. (þessir draumar eru líka yfirleitt marktækir)
En allavegana, þá dreymir mig hvar skærin eru og mundi um leið eftir að hafa sett þau þar. (já, ég var vör um að mig væri að dreyma svo ég gat hugsað þá hugsun, þótt ég væri sofandi) Svo vaknaði ég, rosalega ánægð með að hafa loksins fundið skærin. Eeeeeeen…

Þá var ég búin að gleyma helmingnum af draumnun, nefnilega hvar mig dreymdi að hafa sett þau! Svekk eða hvað?

En svo var það allt í lagi, eftir að hafa slakað á gat ég endurupplifað drauminn og fann loksins skærin.

Svo, allt er gott sem endar vel =) =)