Eins og flestir ættu að vita þá fara jólin að nálgast bráðum og er það stefnan á mínu heimili að gefa yngsta meðliminum leikjatölvu.

Nú veit ég ekkert, og þá meina ég ekkert, um leikjatölvur og spyr því;

Hver er munurinn á PS2 og PS3, fyrir utan að önnur er nýrri? Eru sömu leikirnir?

Hvar er hægt að fá ódýrar, og þess vegna notaðar, leikjatölvur? (ef einhver er að selja, endilega látið mig vita)