Dagurinn minn hefur verið ömurlegur og því ætla ég að leyfa mér að væla.

Ég er þreytt, mér er kalt, ég er slöpp og að byrja að fá hálsbólgu.

Ég er að vinna sem leiðtogi í barnastarfi og í dag tóku nokkrir litlir pjakkar sig saman og réðust á mig með prikum, grjóti, spörkum og kýlingum.

Jibbí.

Vinkona mín var að skipta um bekk og hefur ekki talað við mig síðan.
Ég hef aldrei verið jafn ein og mér líður ömurlega.

Á morgun ætla ég ekki einu sinni að hafa fyrir því að fara fram úr.