Satt að segja bjóst ég aldrei við því að ég gæti gefið mynd eins og “The Legend of Baggar Vance” heilar 9 stjörnur af 10. Það er greinlegt að hvaðeina sem Matt nokkur Damon tekur sér fyrir hendur reynist vera afbragðsverkefni, fyrir utan að mér finnst Titan A.E. sem mér fannst heldur slöpp afþreying, samt sem áður láði hann aðalsöguhetjunni rödd sína með tilhrifum. Aðalleikarar myndarinnar “The Legend of Baggar Vance” eru Matt Damon, Will Smith og Charlize Theron. Myndin gerist í Savannah,...