Jæja, þá er komið að því. Ég ætla nú í staðinn fyrir að hætta með stelpu með því að segja henni það í SMS og gera það á góðan máta.
Þessi stelpa sem ég er með er alveg ógeðslega góð stelpa, er að leita að öllum pakkanum í lífinu og það er í sjálfum sér ekkert að henni nema það að ég er ekki að leita mér að svona full-time 4ever samband og leita á náð ykkar. Ef þið getið gefið mér einhverja pointera um hvernig ykkur hefur verið sagt upp og hafið verið fljót að jafna ykkur þá væri það vel þegið. Þið spyrjið ykkur eflaust “afhverju hann vilji hætta með henni?” Svarið er einfalt, ég er ekki hamingjusamur í þessu sambandi og maður verður alltaf að hugsa ÉG, ÉG, ÉG fyrst. Þannig gengur þetta. Any tips would be great. Ég held að Spotta litla gæti lumað á einhverju hún varð svo brjáluð við mig um daginn. Takk fyrir lesturinn.