Á netinu er verið að dreifa einni flic sem á að vera American Pie 2. Bið ykkur að varast þetta en dreifendur hafa líklegast bara ákveðið að ráða einhverja óprúttna náunga til þess að falsa þetta. Í byrjun myndarinnar kemur fram cast-ið sem er gjörbreytt frá síðustu mynd enginn Jason Biggs osfrv. Síðan er búið að eyða út alvöru nafni myndarinnar og setja inn American Pie 2. Raunverulegt nafn þessarar myndar er Coming Soon og hefur tagline “An American Pie for young teenage girls.” Vildi bara koma þessari ábendingu áleiðis. Slæmt að þurfa að downloada 1.5 Gb þegar myndin reynist ekki vera sá skítur sem maður hafði upphaflega óskað eftir að sjá.

Annað slíkt dæmi um svona er þegar eitthvert rússneskt kvikmyndafyrirtæki gaf út einhverja pathetic mynd og skýrði hana Matrix 2…hvar er höfundarrétturinn á þessu öllu saman??? sveijattann.